Lilja Sigríður Jensdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lilja Sigríður Jensdóttir.

Lilja Sigríður Jensdóttir húsfreyja fæddist 9. nóvember 1930 á Dyrhólum við Hásteinsveg 15 B og lést 10. júlí 2022.
Foreldrar hennar voru Jens Sigurður Ólafsson bifreiðastjóri, f. 9. maí 1909 á Hofsósi í Skagafirði, d. 23. febrúar 1992, og kona hans Kristný Jónína Valdadóttir húsfreyja, f. 10. október 1909 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 10. ágúst 1993.

Börn Kristnýjar Jónínu og Jens:
1. Ólafur Jensson, f. 26. ágúst 1929 á Búrfelli, d. 28. janúar 1930.
2. Lilja Sigríður Jensdóttir, f. 9. nóvember 1930 á Dyrhólum, d. 10. júlí 2022. Maður hennar var Guðlaugur Þórarinn Helgason, látinn.
3. Fjóla Jensdóttir, f. 15. apríl 1932 á Dyrhólum, d. 31. mars 1986. Maður hennar Bogi Sigurðsson.
4. Guðmunda Guðrún Jensdóttir, f. 13. september 1936. Fyrrum maður hennar Þorbjörn Ásgeirsson.
5. Sigríður Mínerva Jensdóttir, f. 3. nóvember 1943 á Einidrangi. Maður hennar Kristinn Skæringur Baldvinsson.
Fósturdóttir hjónanna, dóttir Guðrúnar Jensdóttur er
6. Guðný Linda Antonsdóttir, f. 14. júlí 1953.

Lilja var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var starfsmaður á Sjúkrahúsinu.
Þau Guðlaugur giftu sig, eignuðust sex börn. Þau bjuggu í fyrstu á Heimagötu 30, en byggðu hús að Kirkjubæjarbraut 22 og bjuggu þar til Goss 1973.
Um tíma bjó fjölskyldan á Eyrarbakka, en Guðlaugur vann í Eyjum.
Þau festu kaup á húsinu að Brimhólabraut 32 og bjuggu þar síðan.
Guðlaugur lést 1982.
Lilja bjó með Jóni í 25 ár.
Jón lést 2017 og Lilja 2022.

I. Maður Lilju var Guðlaugur Helgason frá Litlu-Heiði við Sólhlíð 21, sjómaður, verkstjóri, f. 13. nóvember 1928, d. 23. september 1982.
Börn þeirra:
1. Guðrún Erla Guðlaugsdóttir, f. 2. maí 1952 að Heimagötu 30. Maður hennar Ingólfur Geirdal.
2. Kristný Hulda Guðlaugsdóttir, f. 4. ágúst 1954, d. 18. júlí 2004. Barnsfaðir hennar Ólafur Friðrik Guðjónsson. Maður hennar Rúnar Helgi Bogason.
3. Helga Guðlaugsdóttir, f. 24. janúar 1956. Maður hennar Pétur Laxdal Sigurðsson.
4. Svanhildur Guðlaugsdóttir, f. 16. október 1959. Maður hennar Jóhannes Ólafsson
5. Gylfi Þór Guðlaugsson, f. 22. júlí 1963.
6. Erna Guðlaugsdóttir, f. 27. desember 1969. Maður hennar Hlynur Leifsson.

II. Sambúðarmaður Lilju var Jón Sigurðsson Þórðarson skipasmiður, húsasmiður, f. 17. júní 1921, d. 7. maí 2017.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.