Kristinn Skæringsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Skæringsson, frá Drangshlíð u. Eyjafjöllum skógfræðingur, skógarvörður fæddist 25. apríl 1932.
Foreldrar hans voru Skæringur Sigurðsson bóndi, f. þar 14. mars 1886, d. 27. febrúar 1973, og kona hans Kristín Ámundadóttir frá Bjólu í Djúpárhreppi, Rang., húsfreyja, f. þar 13. apríl 1886, d. 26. september 1932.

Börn Kristínar og Skærings:
1. Sigríður Skæringsdóttir, f. 31. mars 1907, d. 26. janúar 1908.
2. Sigurþór Skæringsson bóndi á Rauðafelli, síðar verkamaður í Þorlákshöfn, f. 6. júlí 1909, d. 1. desember 2001. Kona hans Bergþóra Auðunsdóttir.
3. Aðalbjörg Skæringsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 23. mars 1911, d. 28. maí 1997. Maður hennar Hermann Guðjónsson.
4. Einar Skæringsson verkamaður í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 16. júní 1912, d. 10. mars 2004. Kona hans Guðríður Konráðsdóttir.
5. Ásta Ragnheiður Skæringsdóttir verkakona, síðar í Reykjavík, f. 3. nóvember 1913, síðast í Reykjavík, d. 4. október 1994. Barnsfaðir hennar Gestur Auðunsson.
6. Baldvin Skæringsson smiður, síðar í Mosfellsbæ, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006. Kona hans Þórunn Elíasdóttir.
7. Georg Skæringsson verkamaður, síðar húsvörður, f. 30. ágúst 1915, d. 16. mars 1988. Kona hans Sigurbára Júlía Sigurðardóttir.
8. Jakob Skæringsson verkamaður í Reykjavík, f. 2. febrúar 1917, d. 30. ágúst 1965. Kona hans Rósa Þorsteinsdóttir, látin.
9. Sveinborg Anna Skæringsdóttir saumakona, síðar í Reykjavík, f. 15. júní 1919, d. 21. nóvember 1982.
10. Rútur Skæringsson smiður í Vík í Mýrdal, f. 29. apríl 1921, d. 7. ágúst 1997. Kona hans Guðbjörg Jónsdóttir.
11. Guðfinna Skæringsdóttir, f. 26. október 1922, d. 18. apríl 1925.
12. Guðmann Skæringsson smiður, síðar starfsmaður ÍSALS, f. 29. nóvember 1925, d. 13. mars 2006. Kona hans Bjarnfríður Ósk Alfreðsdóttir.
13. Andvana stúlka, f. 4. ágúst 1927.
14. Kristinn Skæringsson skógfræðingur í Kópavogi, f. 25. apríl 1932. Kona hans Þorbjörg Jóhannesdóttir.

Þau Þorbjörg giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Kópavogi.

I. Kona Kristins var Þorbjörg Jóhannesdóttir, húsfreyja, saumakona, kaupmaður, f. 9. apríl 1928, d. 17. maí 2013. Foreldrar hennar Jóhannes Árnason, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, f. 18. júní 1890, d. 25. febrúar 1971, og kona hans Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir, húsfreyja, ljósmóðir, f. 24. mars 1892, d. 3. apríl 1939.
Börn þeirra:
1. Aðalbjörg Kristinsdóttir, f. 4. ágúst 1955.
2. Gissur Kristinsson, f. 28. maí 1957.
3. Finnur Kristinsson, f. 20. appríl 1961.
4. Ísleifur Kristinsson, f. 13. júní 1967.


Heimildir

jónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


[[Flokkur: Skógfræðingar]