Rútur Skæringsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rútur Skæringsson, smiður fæddist 28. apríl 1921 á Rauðafelli u. Eyjafjöllum og lést 7. ágúst 1997.
Foreldrar hans voru Skæringur Sigurðsson bóndi, f. þar 14. mars 1886, d. 27. febrúar 1973, og kona hans Kristín Ámundadóttir frá Bjólu í Djúpárhreppi, Rang., húsfreyja, f. þar 13. apríl 1886, d. 26. september 1932.

Börn Kristínar og Skærings:
1. Sigríður Skæringsdóttir, f. 31. mars 1907, d. 26. janúar 1908.
2. Sigurþór Skæringsson bóndi á Rauðafelli, síðar verkamaður í Þorlákshöfn, f. 6. júlí 1909, d. 1. desember 2001. Kona hans Bergþóra Auðunsdóttir.
3. Aðalbjörg Skæringsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 23. mars 1911, d. 28. maí 1997. Maður hennar Hermann Guðjónsson.
4. Einar Skæringsson verkamaður í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 16. júní 1912, d. 10. mars 2004. Kona hans Guðríður Konráðsdóttir.
5. Ásta Ragnheiður Skæringsdóttir verkakona, síðar í Reykjavík, f. 3. nóvember 1913, síðast í Reykjavík, d. 4. október 1994. Barnsfaðir hennar Gestur Auðunsson.
6. Baldvin Skæringsson smiður, síðar í Mosfellsbæ, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006. Kona hans Þórunn Elíasdóttir.
7. Georg Skæringsson verkamaður, síðar húsvörður, f. 30. ágúst 1915, d. 16. mars 1988. Kona hans Sigurbára Júlía Sigurðardóttir.
8. Jakob Skæringsson verkamaður í Reykjavík, f. 2. febrúar 1917, d. 30. ágúst 1965. Kona hans Rósa Þorsteinsdóttir, látin.
9. Sveinborg Anna Skæringsdóttir saumakona, síðar í Reykjavík, f. 15. júní 1919, d. 21. nóvember 1982.
10. Rútur Skæringsson smiður í Vík í Mýrdal, f. 29. apríl 1921, d. 7. ágúst 1997. Kona hans Guðbjörg Jónsdóttir.
11. Guðfinna Skæringsdóttir, f. 26. október 1922, d. 18. apríl 1925.
12. Guðmann Skæringsson smiður, síðar starfsmaður ÍSALS, f. 29. nóvember 1925, d. 13. mars 2006. Kona hans Bjarnfríður Ósk Alfreðsdóttir.
13. Andvana stúlka, f. 4. ágúst 1927.
14. Kristinn Skæringsson skógfræðingur í Kópavogi, f. 25. apríl 1932. Kona hans Þorbjörg Jóhannesdóttir.

Rútur var í Eyjum, fór þaðan 1944 til Víkur í Mýrdal, var sjómaður á Skagnesi 1944-1945, smiður í Vík og heimilisfaðir frá 1945.
Þau Guðbjörg giftu sig 1945, eignuðust þrjú börn.
Rútur lést 1997 og Guðbjörg 2009.

I. Kona Rúts, 1945, var Guðbjörg Jónsdóttir, frá Herjólfsstöðum í Álftaveri, V.-Skaft., húsfreyja, saumakona, f. 9. desember 1915, d. 16. mars 2009. Foreldrar hennar Jón Hjartarson, bóndi, f. 20. júlí 1876, d. 27. júlí 1963, og kona hans Sigríður Úlfsdóttir, húsfreyja, f. 17. desember 1879, d. 17. maí 1966.
Börn þeirra:
1. Sigurjón Rútsson, f. 8. desember 1944.
2. Kristín Inga Rútsdóttir, f. 21. mars 1947.
3. Heiðrún Rútsdóttir, f. 23. apríl 1948.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.