Karl Einarsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Karl Einarsson, sýslumaður og alþingismaður.
Börn Karls Einarssonar

Karl Einarsson, sýslumaður, var alþingismaður Vestmannaeyja frá 1914 til 1923. Karl fæddist í Miðhúsum í Eiðaþinghá þann 18. janúar 1872. Karl lést í Reykjavík þann 20. september 1970. Foreldrar Karls voru Einar Hinriksson (fæddur 25, janúar 1832, dáinn 19. nóvember 1910 í Vestmannaeyjum) bóndi í Miðhúsum, síðar veitingamaður á Seyðisfirði og kona hans Pálína Vigfúsdóttir (fædd 6. apríl 1851, dáin 25. febrúar 1915). Karl kvæntist þann 13. ágúst 1904 Elínu Margréti (fædd 26. september 1879, dáin 31. janúar 1942) dóttur Jónasar Stephensen póstafgreiðslumanns á Seyðisfirði og konu hans Margrétar Stefánsdóttir.

Karl varð stúdent í Reykjavík 1895. Hann tók lögfræðipróf frá Hafnarháskóla 1903. Karl var settur sýslumaður í Rangárvallasýslu frá 1. ágúst 1904 að telja og sýslumaður í Skaftfellssýslu frá 1. október og gegndi því embætti til 15. júní 1905. Var ráðinn aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1906 og jafnframt málaflutningsmaður við yfirréttinn í Reykjavík.

Var settur sýslumaður í Vestmannaeyjum 1910 til 1924. Karl var sem sýslumaður bæjarstjóri í Eyjum frá stofnun kaupstaðar 1918 uns bæjarstjóri var kosinn 1924. Karl var drifkraftur í ýmsum menningar- og þjóðþrifamálum í Eyjum og var t.d. ásamt Sigurði Sigurfinnssyni frumkvöðull að byggingu barnaskólans við Skólaveg fjórum árum áður en hann var byggður. Hann fluttist eftir það til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka. Karl var skipaður árið 1909 í nefnd til þess að rannsaka hag Landsbankans. Síðar var hann settur gæslustjóri Landsbankans 22. nóvember 1909 til bráðabirgða, en beiddist lausnar níu dögum síðar. Varð að nýju aðstoðarmaður í fjármálaráðuneytinu 1924 til 1. febrúar 1952 og starfaði þá aðallega við endurskoðun.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
  • Þorsteinn Þ. Víglundsson: Blik ársrit Vestmannaeyja 1965. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum 5. kafli 1914-1920.
  • Garður.is

Frekari umfjöllun

I. Kona Karls, (13. ágúst 1904), var Elín Jónasdóttir Stephensen frá Seyðisfirði, húsfreyja, f. 26. september 1879, d. 31. janúar 1942.
Börn þeirra:
1. Jónas Þorsteinn Karlsson, f. 10. maí 1902, d. 6. júlí 1902.
2. Jónas Karl Karlsson kennari, verkamaður í Reykjavík, f. 2. apríl 1907 í Reykjavík, d. 10. september 1984.
3. Einar Karlsson, f. 2. apríl 1907, d. 17. nóvember 1907.
4. Margrét Pálína Karlsdóttir, f. 17. apríl 1910 í Eyjum, d. 26. júlí 1911.
5. Stefán Einar Karlsson rafvirki, f. 10. maí 1913 í Eyjum, d. 13. maí 1991.
6. Pálína Margrét Karlsdóttir Norðdahl, f. 18. maí 1915, d. 20. apríl 1998.
7. Anna Guðrún Karlsdóttir hárgreiðslukona í Reykjavík, f. 13. mars 1917, d. 1. nóvember 1944.

II. Barn Karls með Guðrúnu Pétursdóttur frá Tjörn í Hún, f. 19. september 1895.
8. Gunnar Svanhólm Júlíusson, f. 23. júlí 1918 í Reykjavík.

III. Barn Karls með Margréti Ásmundsdóttur, f. 18. ágúst 1893, d. 14. október 1963.
9. Gunnar Viggó Jóelsson járnsmíðameistari, f. 12. júní 1918 í Reykjavík, d. 19. desember 1990.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hver er maðurinn — Íslendingaævir. Brynleifur Tobíasson. Fagurskinna 1944.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.