Jónas Þór Steinarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Þór Steinarsson frá Skuld við Vestmannabraut 40, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, ráðgjafi fæddist þar 2. október 1946.
Foreldrar hans voru Sigurður Steinar Júlíusson feldskeri, f. 28. janúar 1930 í Eyvindarholti við Brekastíg 7b, og kona hans Guðrún Jónasdóttir frá Skuld, húsfreyja, talsímakona, orðabókarstarfsmaður, f. 17. janúar 1930 á Hásteinsvegi 28, d. 18. júní 2016.
Fósturforeldrar Jónasar voru móðurforeldrar hans Jónas Sigurðsson frá Skuld, skipstjóri, bátabylgjuvaktmaður, skólahúsvörður, f. 29. mars 1907, d. 4. janúar 1980, og kona hans Guðrún Kristín Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1907, d. 26. mars 2005.

Börn Guðrúnar og Jónasar:
1. Ingunn, fædd 12. maí 1928, dáin 24. febrúar 2013.
2. Guðrún, fædd 17. janúar 1930, d. 18. júní 2016.
3. Sjöfn, fædd 5. febrúar 1932.
4. Sigurgeir, fæddur 19. september 1934.
5. Sigurjón Ingvars, fæddur 22. febrúar 1940, d. 11. september 2022.
6. Uppeldissonur þeirra Jónasar og Guðrúnar er Jónas Þór, f. 2. október 1946. Hann er dóttursonur þeirra, sonur Guðrúnar Jónasdóttur og Sigurðar Steinars Júlíussonar.
Börn Guðrúnar Jónasdóttur og Steinars Júlíussonar:
1. Jónas Þór Steinarsson viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, f. 2. október 1946.
2. Ragna Steinarsdóttir bókasafnsfræðingur, bókavörður, sviðsstjóri, f. 22. maí 1957. Maður hennar Þorsteinn Þórhallsson.
3. Júlíus Þórarinn Steinarsson feldskeri, f. 1. desember 1958.
4. Eyvindur Ingi Steinarsson tónlistarmaður, kennari, f. 13. desember 1960.
5. Gunnar Kristinn Steinarsson tónlistarmaður í Nesoddtangen í Akershus, Noregi, f. 2. júlí 1964 í Reykjavík. Kona hans var Mirja Kuusela, f. 12. maí 1964, d. 1. maí 2004.

Jónas Þór var með móður sinni og síðar fósturforeldrum í Skuld í æsku.
Hann lauk landsprófi í Gagnfræðaskólanum 1962, varð stúdent í Menntaskólanum í Reykjavík 1966, varð viðskiptafræðingur í Háskóla Íslands 1972.
Jónas Þór kenndi við Gagnfræðaskólann í Eyjum 1966-1967, var skrifstofustjóri hjá Félagi íslenskra stórkaupmanna og Bílgreinasambandinu 1972-1977, framkvæmdastjóri þar 1977-1982, framkvæmdastjóri hjá Bílgreinasambandinu 1982-2007.
Hann hefur síðan rekið ráðgjöf og þjónustu fyrir réttinga- og málningaverkstæði.
Jónas þór á fjölda mynda á Heimaslóð.
Þau Þórey giftu sig 1972, eignuðust tvö börn.

I. Kona Jónasar Þórs, (19. desember 1972), er Þórey Mortens, f. 25. október 1947. Foreldrar hennar Emanuel Morthens, f. 14. janúar 1921, d. 17. desember 2016, og kona hans Guðjónína Þorbjörg Ólafsdóttir Morthens, f. 13. desember 1926, d. 15. janúar 2020.
Börn þeirra:
1. Guðjón Ragnar Jónasson búfræðingur, íslenskufræðingur, menntaskólakennari, f. 25. maí 1974. Barnsmóðir hans Þórunn Jónsdóttir.
2. Jónas Páll Jónasson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, f. 14. ágúst 1976. Kona hans Sólveig Guðrún Hannesdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.