Jónasína Runólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þórarinn og Jónasína

Jónasína Þóra Runólfsdóttir frá Hausthúsum á Eyrarbakka, húsfreyja á Jaðri fæddist 2. september 1894 á Óseyrarnesi á Eyrarbakka og lést 8. janúar 1977.
Faðir hennar var Runólfur frá Hausthúsum á Stokkseyri, bóndi, verkamaður, f. 7. apríl 1872 í Magnúsfjósum í Sandvíkurhreppi, Árn., d. 19. júlí 1946, Jónasson bónda í Magnúsfjósum 1870, í Eyvakoti 1890, f. 28. febrúar 1838 í Kaldaðarnessókn, d. 17. mars 1894, Hannessonar bónda í Ranakoti efra á Stokkseyri 1832-1838, áður í Langholti í Flóa, f. 23. ágúst 1786, d. 2. febrúar 1839, Runólfssonar, og konu Hannesar Runólfssonar, Vilborgar húsfreyju, f. 22. maí 1808 í Vesturkoti á Skeiðum, d. 18. janúar 1860, Ingimundardóttur á Syðri-Brúnavöllum á Skeiðum Sigvaldasonar.
Móðir Runólfs Jónassonar og kona Jónasar í Magnúsfjósum var Margrét húsfreyja, f. 1839, Bjarnadóttir bónda á Stóra-Hálsi í Úlfljótsvatnssókn 1845, f. um 1794 á Hala í Ölfusi, d. 7. september 1860, Kolbeinssonar, og konu Bjarna, Málmfríðar húsfreyju, f. 1794, Ólafsdóttur bónda í Tungu í Úlfljótsvatnssókn 1801, Jónssonar og konu Ólafs, Jórunnar Einarsdóttur húsfreyju.

Móðir Jónasínu Þóru Runólfsdóttur og kona Runólfs Jónassonar var Sólrún frá Þinghól í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 28. maí 1867, d. 2. september 1941, Guðmundsdóttir bónda á Þinghól 1870, f. 10. september 1826, d. 8. ágúst 1907, Árnasonar bónda á Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð, f. 1796, d. 26. febrúar 1845, Vigfússonar og konu Árna Vigfússonar, Guðrúnar húsfreyju, f. 14. janúar 1805, d. 28. maí 1890, Magnúsdóttur.
Móðir Sólrúnar og kona Guðmundar í Þinghól var Þóra húsfreyja, f. 31. janúar 1823, d. 20. júní 1888, Jónsdóttir bónda á Háarima í Þykkvabæ og Syðri-Rauðalæk í Holtum, f. 17. september 1789 í Tobbakoti í Þykkvabæ, d. 14. mars 1852, Hólmfastssonar, og fyrri konu Jóns Hólmfastssonar, Sigríðar húsfreyju, f. 24. apríl 1794, d. 4. desember 1839, Felixdóttur.


ctr


Sólrún Guðmundsdóttir og Runólfur Jónasson og börn þeirra.


Börn Sólrúnar og Runólfs:
1. Jónasína Þóra Runólfsdóttir húsfreyja á Jaðri, f. 2. september 1894 á Óseyrarnesi, d. 8. janúar 1977.
2. Margrét Runólfsdóttir húsfreyja á Jaðri og í Reykjavík, f. 6. júní 1896 í Ranakoti, d. 24. júlí 1981.
3. Runólfur Runólfsson skipstjóri, vélstjóri í Bræðratungu, f. 12. desember 1899 í Hausthúsum, d. 4. júní 1983.
4. Sigurmundur Runólfsson verkamaður, verkstjóri, f. 4. ágúst 1904, d. 16. febrúar 1974.
5. Ingibjörg Runólfsdóttir húsfreyja í Litla-Hvammi, f. 13. janúar 1907, d. 7. mars 1997.

Jónasína Þóra var með foreldrum sínum á Beinateigi 2 (Hausthúsum) 1901, var við nám á saumastofu í Reykjavík 1910.
Hún fluttist til Eyja 1913, var vinnukona í Brautarholti 1914, giftist Þórarni 1915 og bjó með honum þar 1915-1917, á Geirlandi 1918 og 1919.
Þau voru komin að Jaðri 1920 og bjuggu þar síðan.
Þau eignuðust ekki börn, en ólu upp tvö fósturbörn, Erlend Hvannberg Eyjólfsson og Jónas Þóri Dagbjartsson, systursyni Jónasínu.
Þórarinn lést 1975 og Jónasína Þóra 1977.

I. Maður Jónasínu, (24. október 1915), var Þórarinn Guðmundsson skipstjóri á Jaðri, f. 13. janúar 1893, d. 30. maí 1975.
Fósturbörn þeirra:
1. Erlendur Hvannberg Eyjólfsson eldsmiður, f. 23. nóvember 1919, d. 28. desember 2000.
2. Jónas Þórir Dagbjartsson tónlistarmaður, f. 20. ágúst 1926, d. 6. desember 2014.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.