Þórarinn Guðmundsson (Jaðri)
Fara í flakk
Fara í leit
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Þórarinn Guðmundsson“
Þórarinn Guðmundsson frá Mandal, fæddist í Frydendal í Vestmannaeyjum 13. janúar 1893 og lést 30. maí 1975. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, síðar í Ey og Málfríður Erlendsdóttir. Eiginkona Þórarins var Jónasína Runólfsdóttir. Þau bjuggu á Jaðri við Vestmannabraut.
Þórarinn var formaður í 30 ár, með Gústaf 1915-1916, Kristbjörgu 1917-1920, Úndínu 1921-1925, Skallagrím 1926-1927, Skíðblaðnir 1929-1933, Höfrung II 1934-1938, Happasæl 1939-1940 og Helga 1941-1944.
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þórarinn:
- Glöggur á veðra og græðisfar
- greindur og snar í orðum
- Þórarinn Helgu úr kvikum mar
- hleður að efstu borðum.
Myndir
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1995.
- Viðbót við heilmildir Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum