Jónína Jónsdóttir (Steinholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Jónsdóttir frá Garðstöðum, húsfreyja í Steinholti fæddist 11. ágúst 1885 í Mandal og lést 3. mars 1957 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Jón Einarsson formaður á Garðstöðum, f. 27. janúar 1857, d. 10. október 1906, og kona hans Ingibjörg Hreinsdóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1854, d. 18. nóvember 1922.

Systir Jónínu var Sigríður Jónsdóttir, f. 2. desember 1882. Hún fór til til Vesturheims, kona Kristjáns Sæmundssonar.

Jónína var með foreldrum sínum í Mandal til ársins 1890, í Helgahjalli 1890, á Garðstöðum 1891 og enn 1901.
Hún giftist Kristmanni Þorkelssyni 1905, var búandi á Garðstöðum 1905 við fæðingu Ingibergs Sigurjóns (Inga).
Þau voru komin að Steinholti 1906 og bjuggu þar uns þau fluttust til Reykjavíkur 1933.
Á næstu árum var heimili þeirra fjölmennt bæði af vinnufólki þeirra og ættingjum.
Þau eignuðust 8 börn í Steinholti, misstu Rósu á fyrsta ári 1908 og Ágúst tæpra 6 ára 1928.
Þau bjuggu í Reykjavík frá 1933.
Jónína lést 1957 og Kristmann 1972.

ctr


Jónína Jónsdóttir, Kristmann Þorkelsson og börn þeirra.
Frá vinstri: Sigurveig Þóra, Alexander, Magnea Þórey, Karl, Júlíana Kristín, Huld, Ingibergur Sigurjón.


Maður Jónínu, (17. júní 1905), var Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1883 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972 í Reykjavík .
Börn þeirra voru:
1. Ingi Kristmanns bankagjaldkeri, bankaritari, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1974.
2. Rósa Kristmannsdóttir, f. 15. apríl 1908, skírð 5. júní 1908. Hún var ekki með foreldrum sínum í Steinholti í lok árs 1908 né síðar, - finnst ekki lífs né liðin.
3. Júlíana Kristín Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 18. júlí 1910, d. 10. janúar 1990.
4. Karl Kristmanns kaupmaður, f. 21. nóvember 1911, d. 19. janúar 1958.
5. Magnea Þórey Kristmannsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1915, d. 6. ágúst 1955.
6. Huld Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. febrúar 1917, d. 10. maí 2010.
7. Alexander Kristmannsson járnsmiður í Reykjavík, f. 17. apríl 1919, d. 4. ágúst 1956.
8. Sigurveig Þóra Kristmannsdóttir húsfreyja, skrifstofukona í Reykjavík, f. 7. janúar 1921, d. 13. apríl 1997.
9. Ágúst Kristmannsson, f. 11. ágúst 1922, d. 28. júlí 1928.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.