Magnea Þórey Kristmannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Magnea Þórey Kristmannsdóttir.

Magnea Þórey Kristmannsdóttir húsfreyja fæddist 11. febrúar 1915 í Steinholti og lést 6. ágúst 1955 í Kaupmannahöfn.
Foreldrar hennar voru Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1883 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972 í Reyjkavík og kona hans Jónína Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1885 í Mandal, d. 3. mars 1957 í Reykjavík.

Systkini Magneu Þóreyjar voru:
1. Ingi Kristmanns bankagjaldkeri, bankaritari, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1974.
2. Rósa Kristmannsdóttir, f. 15. apríl 1908, skírð 5. júní 1908. Hún var ekki með foreldrum sínum í Steinholti í lok árs 1908 né síðar, - finnst ekki lífs né liðin.
3. Júlíana Kristín Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 18. júlí 1910, d. 10. janúar 1990.
4. Karl Kristmanns kaupmaður, f. 21. nóvember 1911, d. 19. janúar 1958.
5. Huld Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. febrúar 1917, d. 10. maí 2010.
6. Alexander Kristmannsson járnsmiður í Reykjavík, f. 17. apríl 1919, d. 4. ágúst 1956.
7. Sigurveig Þóra Kristmannsdóttir húsfreyja, skrifstofukona í Reykjavík, f. 7. janúar 1921, d. 13. apríl 1997.
8. Ágúst Kristmannsson, f. 11. ágúst 1922, d. 28. júlí 1928.

Magnea var með fjölskyldu sinni í Steinholti í æsku. Hún fluttist með þeim til Reykjavíkur og bjó þar síðan..

Maður hennar var Guðbjartur Þorgilsson bifreiðastjóri frá Suðurnesjum, f. 11. maí 1916, d. 10. febrúar 1979.
Börn þeirra voru:
1. Ágústa Ósk Guðbjartsdóttir, f. 22. júní 1940, d. 19. apríl 2022. Maki hennar var Þorbjörn Hilmar Þorbjörnsson lögregluþjónn, f. 23. október 1934, d. 29. janúar 1999.
2. Unnur Guðbjartsdóttir, f. 10. febrúar 1946. Maki hennar er Þórður Ásgeir Valdimarsson, f. 9. júlí 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.