Huld Kristmannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Huld Kristmannsdóttir.

Huld Kristmannsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 19. febrúar 1917 í Steinholti og lést 10. maí 2010.
Foreldrar hennar voru Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1883 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972 í Reyjkavík og kona hans Jónína Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1885 í Mandal, d. 3. mars 1957 í Reykjavík.

Systkini Huldar voru:
1. Ingi Kristmanns bankagjaldkeri, bankaritari, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1974.
2. Rósa Kristmannsdóttir, f. 15. apríl 1908, skírð 5. júní 1908. Hún var ekki með foreldrum sínum í Steinholti í lok árs 1908 né síðar, - finnst ekki lífs né liðin.
3. Júlíana Kristín Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 18. júlí 1910, d. 10. janúar 1990.
4. Karl Kristmanns kaupmaður, f. 21. nóvember 1911, d. 19. janúar 1958.
5. Magnea Þórey Kristmannsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1915, d. 6. ágúst 1955.
6. Alexander Kristmannsson járnsmiður í Reykjavík, f. 17. apríl 1919, d. 4. ágúst 1956.
7. Sigurveig Þóra Kristmannsdóttir húsfreyja, skrifstofukona í Reykjavík, f. 7. janúar 1921, d. 13. apríl 1997.
8. Ágúst Kristmannsson, f. 11. ágúst 1922, d. 28. júlí 1928.

Huld var með fjölskyldu sinni í Steinholti í æsku, fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur 1933 og bjó þar síðan.
Hún vann hjá Útvegsbankanum, Flugfélagi Íslands og á Landspítalanum. Huld var einn af stofnendum Kvenfélagsins Heimaeyjar og var formaður þess um árabil.

Maður hennar, (18. janúar 1936), var Árni Jóhannsson klæðskeri frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 12. ágúst 1906, d. 10. janúar 1980.
Börn þeirra:
1. Hörður Árnason, f. 13. júlí 1936, d. 17. mars 1937.
2. Kristmann Hörður Árnason framkvæmdastjóri og verslunarmaður í Reykjavík, f. 28. júní 1940, d. 22. júlí 1993. Kona hans var Brynja Hlíðar, f. 16. september 1943.
3. Edda Árnadóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 19. nóvember 1944. Maður hennar er Magnús Ólafsson, f. 4. mars 1944.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.