Marta Sigurjónsdóttir (Kirkjuvegi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Marta Sigurjónsdóttir.

Marta Sigurjónsdóttir frá Kirkjuvegi 86, húsfreyja fæddist þar 5. febrúar 1936 og lést 26. apríl 2021.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurðsson frá Brekkuhúsi, bátsformaður, útgerðarmaður, fiskimatsmaður, fisksali, f. 6. mars 1890 í Hallgeirsey í A-Landeyjum, d. 8. júní 1959, og síðari kona hans Ingibjörg Högnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1904, d. 3. september 1991.

Börn Sigurjóns og fyrri konu hans Kristínar Óladóttur:
1. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 27. desember 1910 í Brekkuhúsi, d. 24. júní 1971, gift Boga Ólafssyni skipstjóra, f. 1. nóvember 1910, d. 1. janúar 2003.
2. Sigurður Óli Sigurjónsson skipstjóri, f. 24. janúar 1912 á Kirkjulandi, d. 16. júní 1981. Kona hans var Jóhanna Kristín Helgadóttir, f. 9. október 1915 í Eyjum, d. 7. október 2000.
4. Aðalheiður, dó þriggja ára.
5. Jóhanna Sigurjónsdóttir húafreyja, kaupkona, f. 21. ágúst 1915 á Mosfelli, d. 28. mars 1989, gift Sigurði Guðmundssyni brunaverði, f. 12. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1992.
6. Ragnhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. júlí 1918 í Gvendarhúsi, d. 4. júlí 2009, gift Sigurði Eyjólfssyni prentara í Reykjavík.
7. Drengur, tvíburi við Ragnhildi, fæddist og dó sama dag.
8. Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1923 í Pálshúsi, d. 21. nóvember 2016, gift Elíasi Gunnlaugssyni skipstjóra, f. 22. febrúar 1922.
9. Aðalheiður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1926 á Þingeyri, gift: 1) Antoni Jónssyni skipasmið, f. 4. febrúar 1924, d. 18. janúar 2009. Þau skildu, 2) Gísla Ólafssyni bifreiðastjóra, f. 21. júní 1926, d. 20. október 2002.
Fóstursonur Kristínar fyrstu ár ævi sinnar var
10. Ingvi Rafn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 31. júlí 1937, sonur Jóhönnu dóttur hennar. Hann fór til móður sinnar, er hún fór að búa.
Börn Sigurjóns og síðari konu hans Ingibjargar Högnadóttur:
11. Sigurjón Sigurjónsson, f. 12. maí 1932, fórst í flugslysi 31. júlí 1951.
12. Marta Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1936, d. 26. apríl 2021.

Marta var með foreldrum sínum í æsku, vann verkakvennastörf.
Þau Ingólfur giftu sig 1956 eignuðust þrjú börn, bjuggu á Kirkjuvegi 86, síðan á Fjólugötu 4.
Marta lést 2021 í Hraunbúðum.

I. Maður hennar, (23. desember 1956), var Ingólfur Þórarinsson verkamaður, bifreiðastjóri, verkstjóri, f. 24. október 1935 á Vestmannabraut 74, d. 10. febrúar 2023.
Börn þeirra:
1. Sigurjón Ingi Ingólfsson hitaveitustjóri í Eyjum, f. 7. júní 1956 á Kirkjuvegi 86. Kona hans Sigurrós Sverrisdóttir.
2. Þórarinn Ingólfsson framhaldsskólakennari, aðstoðarskólastjóri fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 18. apríl 1958. Kona hans Anna Guðmundsdóttir.
3. Gunnar Örn Ingólfsson sjúkraþjálfari í Reykjavík, f. 18. janúar 1969. Kona hans Helga Barðadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.