Jóhann Sigurður Kristmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhann Sigurður Kristmundsson.

Jóhann Sigurður Kristmundsson frá Garðsauka við Vestmannabraut 27, múrari fæddist þar 11. júlí 1921 og lést 3. mars 2010 á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Foreldrar hans voru Kristmundur Jónsson frá Nesi á Seltjarnarnesi, f. 8. ágúst 1895, d. 9. janúar 1960, og kona hans Jónína Jóhannsdóttir frá Vorsabæ í A.-Landeyjum, húsfreyja, 30. október 1888, d. 6. september 1976.

Börn Jónínu og Kristmundar voru:
1. Guðmundur Árni Kristmundsson sjómaður, verkamaður, f. 3. október 1915 á Reynifelli, d. 14. janúar 1995.
2. Jóna Gróa Kristmundsdóttir húsfreyja, símavörður í Reykjavík, f. 10. janúar 1917 á Reynifelli, d. 15. september 2002.
3. Kristín Kristmundsdóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, f. 21. júní 1918 í Garðsauka, d. 20. janúar 1996.
4. Jóhann Sigurður Kristmundsson múrari í Reykjavík, f. 11. júlí 1921 í Garðsauka, d. 3. mars 2010.
5. Árni Kristmundsson bókbindari, kaupmaður, f. 18. nóvember 1929 á Hamri, d. 21. janúar 2007.
Fósturbarn Kristmundar, barn Jónínu var
6. Guðný Aalen Jóhannesdóttir vinnukona í Eyjum, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 3. janúar 1909 á Sveinsstöðum, d. 8. október 1960.
Barn Jónínu:
7. Margrét Theodóra Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 1. nóvember 1911, d. 28. apríl 1991.

Jóhann var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði múrverk og vann við það til starfsloka 72 ára.
Þau Þóra giftu sig 1953, eignuðust fimm börn. Þau byggðu hús í Smáíbúðahverfinu, Skógargerði 1 og bjuggu þar 1954-2000, er Sigurborg lést, en hann bjó þar til 2006, er hann fór í Laugaskjól og síðan á hjúkrunarheimilið Skjól.
Sigurborg Þóra lést 2000 og Jóhann 2010.

I. Kona Jóhanns, (4. apríl 1953), var Sigurborg Þóra Sigurðardóttir frá Lækjarhúsum í Borgarhöfn í Suðursveit, A.-Skaft., húsfreyja, f. þar 17. október 1926, d. 12. janúar 2000. Foreldrar hennar voru Sigurður Magnússon bóndi, f. 9. júní 1898, d. 20. desember 1959, og kona hans Guðný Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 31. desember 1905, d. 17. október 1993.
Börn þeirra:
1. Jónína Kristjana Jóhannsdóttir, f. 1. júlí 1948. Fyrrum maður hennar Ólafur Vignir Sigurðsson. Sambúðarmaður hennar Sigurður G. Benediktsson.
2. Sigurður Guðni Jóhannsson, f. 16. maí 1949. Kona hans Halldóra Ríkharðsdóttir.
3. Vilborg Nanna Jóhannsdóttir, f. 1. september 1952. Maður hennar Reynir Sverrisson.
4. Óskar Kristmundur Jóhannsson, f. 15. desember 1956. Fyrrum kona hans Guðrún Sigurjónsdóttir. Kona hans Jórunn Jónsdóttir.
5. Sigrún Jóhannsdóttir, f. 25. apríl 1959. Barnsfaðir hennar Bolli Guðbjörn Magnússon.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.