Jóhann Björgvinsson (Bragganum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Magnús Björgvinsson sjómaður, verkamaður fæddist 6. júní 1928 á Heiði við Sólhlíð 19 og lést 14. janúar 2017.
Foreldrar hans voru Helgi Björgvin Magnússon sjómaður, verkamaður, f. 26. janúar 1900 í Víkurgerði í Fáskrúðsfirði, d. 25. október 1995, og kona hans Guðrún Petra Lúðvíksdóttir húsfreyja, f. 17.2.1902 á Kolfreyju á Brimnesi í Fáskrúðsfirði, d. 22. júlí 1961.

Börn Petru og Björgvins:
1. Magnús Friðgeir Björgvinsson sjómaður, f. 3. nóvember 1922 á Fáskrúðsfirði, d. 18. nóvember 2016.
2. Lovísa Guðríður Björgvinsdóttir verkakona, húsfreyja, f. 2. janúar 1924 á Reyðarfirði, d. 29. mars 1979.
3. Jóhann Magnús Björgvinsson sjómaður, f. 6. júní 1928 á Heiði við Sólhlíð 19, d. 14. janúar 2017.
4. Birna Björgvinsdóttir húsfreyja, f. 7. júní 1940 í Kaupangi við Vestmannabraut 31, d. 8. febrúar 1995.
Kjörbarn þeirra var
5. Helga Björgvinsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1941, d. 1. október 2000. Hún var dóttir Lovísu Guðríðar.

Jóhann var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim á Heiði 1928, á Lágafelli við Vestmannabraut 10 1930, í Kaupangi við Vestmannabraut 31 1940, á Gunnarshólma við Vestmannabraut 37 1941, í Bragga við Urðaveg 1945 og 1949, í Eyvindarholti við Brekastíg 7b, bjó á Bessastíg 8 1986, en síðast í Hátúni 16.
Jóhann var sjómaður og verkamaður. Hann lést 2017.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.