Inger Elísa Andersdóttir (Þinghól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Inger Elísa Andersdóttir frá Þinghól við Kirkjuveg 19, húsfreyja, bankastarfsmaður fæddist 22. janúar 1950.
Foreldrar hennar voru Anders Ingibrigt Johan Bergesen Hals útgerðarmaður frá Vågsoy í Nordfjord í Noregi, f. 5. október 1908, d. 22. september 1975, og kona hans Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja, 23. september 1913 á Hnausum við Landagötu 5b, d. 27. júní 2000.

Börn Sólveigar og Anders:
1. Margrét Andersdóttir húsfreyja á Strembugötu 17, f. 4. janúar 1934. Maður hennar Kjartan Konráð Úlfarsson rennismíðameistari, f. 10. júní 1935, d. 4. september 2019.
2. Martina Birgit Andersdóttir húsfreyja í Þinghól við Kirkjuveg 19, f. 22. ágúst 1935. Maður hennar Ásmundur Jónsson rennismíðameistari, f. 28. ágúst 1928, d. 28. ágúst 2019.
3. Ólafía Andersdóttir húsfreyja, bóndi í Noregi, f. 25. október 1946 í Eyjum. Maður hennar Jon Stöyva, látinn.
4. 4. Inger Elísa Andersdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 22. janúar 1950 í Eyjum. Maður hennar Arnþór Flosi Þórðarson, látinn.

Inger var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum, var í Husflidskule (heimilisiðnaðarskóla) í Voss í Noregi einn vetur.
Inger vann í Útvegsbankanum í Eyjum og í Íslandsbanka samtals í 40 ár.
Þau Arnþór Flosi giftu sig 1977, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu við Brimhólabraut ásamt Sólveigu móður Ingerar, byggðu hús við Búhamar 88 og bjuggu þar til ársins 1982, er þau fluttu til Reykjavíkur og síðan á Seltjarnarnes.
Arnþór Flosi lést 2004. Inger Elísa býr í Hafnarfirði.

I. Maður Ingerar, (16. júlí 1977), var Arnþór Flosi Þórðarson kennari, f. 4. mars 1949, d. 4. febrúar 2004.
Börn þeirra:
1. Hafrún Arnþórsdóttir íslenskufræðingur, bókasafns- og upplýsingafræðingur, f. 22. júní 1975. Sambúðarmaður hennar Elías Þórarinn Kristjánsson.
2. Atli Arnþórsson pípulagningameistari, f. 2. október 1979. Barnsmóðir hans Jónína Ingólfsdóttir. Fyrrum kona hans Berglind Sigurðardóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Inger Elísa.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 13. febrúar 2004. Minning Arnþórs Flosa.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.