Ólafía Andersdóttir (Þinghól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólafía Andersdóttir frá Þinghól við Kirkjuveg 19, húsfreyja, bóndi í Byrkjelo í Nordfjord í Noregi fæddist 25. október 1946.
Foreldrar hennar voru Anders Ingibrigt Johan Bergesen Hals útgerðarmaður frá Vågsoy í Nordfjord í Noregi, f. 5. október 1908, d. 22. september 1975, og kona hans Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja, 23. september 1913 á Hnausum við Landagötu 5b, d. 27. júní 2000.

Börn Sólveigar og Anders:
1. Margrét Andersdóttir húsfreyja á Strembugötu 17, f. 4. janúar 1934. Maður hennar Kjartan Konráð Úlfarsson rennismíðameistari, f. 10. júní 1935, d. 4. september 2019.
2. Martina Birgit Andersdóttir húsfreyja í Þinghól við Kirkjuveg 19, f. 22. ágúst 1935. Maður hennar Ásmundur Jónsson rennismíðameistari, f. 28. ágúst 1928, d. 28. ágúst 2019.
3. Ólafía Andersdóttir húsfreyja, bóndi í Noregi, f. 25. október 1946 í Eyjum. Maður hennar Jon Stöyva, látinn.
4. Inger Elísa Andersdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 22. janúar 1950 í Eyjum. Maður hennar Arnþór Flosi Þórðarson, látinn.

Ólafía var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Jon giftu sig 1977, eignuðust tvö börn, voru bændur í Byrkjelo.
Jon lést 1992.
Ólafía rak búið áfram.

I. Maður Ólafíu var Jon Stöyva bóndi, látinn.
Börn þeirra:
1. Bernhard Stöyva, f. 4. janúar 1973. Hann er fatlaður, ekur bíl á vernduðum vinnustað.
2. Margit Andrea Stöyva húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. desember 1977. Sambúðarmaður hennar Odd Kronheim. Börn þeirra Odin Nikolai, f. 7. nóvember 2009 og Jakob Leander, f. 9. ágúst 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.