Helga Víglundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Helga og Stefán.

Gunnbjörg Helga Víglundsdóttir húsfreyja fæddist 15. ágúst 1944 að Hólum í Fljótum í Skagafirði og lést 18. september 2015.
Foreldrar hennar voru Víglundur Jóhannes Arnljótsson, þá bóndi á Hólum, síðar á Akureyri, f. 18. maí 1916, d. 18. maí 1996, og kona hans Benónía Hermína Marinósdóttir húsfreyja, f. 24. september 1919, d. 21. desember 2002.

Hermína móðir Helgu var dóttir Marinós Jónssonar vélstjóra og pípulagningameistara í Eyjum og Sigríðar Kristínar Gunnarsdóttur, f. 21. september 1892, d. 7. maí 1935.
Börn Hermínu og Víglundar - í Eyjum :
1. Jóhanna Víglundsdóttir, f. 17. júlí 1943, kona Gústafs Sigurlássonar.
2. Helga Víglundsdóttir, f. 25. ágúst 1944, kona Stefáns Runólfssonar.
3. Guðrún Víglundsdóttir, f. 11. mars 1950, d. 17. október 1993, kona Harðar Róberts Eyvindssonar, látinn.
4. Ragnheiður Víglundsdóttir, f. 16. apríl 1957, kona Garðars Péturssonar, látinn.

Helga fluttist með foreldrum sínum til Akureyrar 1945 og ólst þar upp.
Hún hóf snemma störf, vann m.a. í síld á Siglufirði og verslunarstörf í Reykjavík.
Hún kom til Eyja 1964 og starfaði í Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni og verslunarstörf í Turninum.
Helga var um skeið formaður Norðlendingafélagsins í Eyjum.
Eftir flutning til Stokkseyrar vann hún við harðfiskverkun og við að skera af netum.
Þau Stefán opinberuðu um sumarið 1965 og giftust 1966.
Helga og Stefán eignuðust þrjú börn, tvö fyrir Gos og eitt 1976.
Þau byggðu hús á horni Helgafellsbrautar og Ásavegar og fluttust þangað 1970. Það fór að miklu leyti undir eldfjallaösku 1973, var afskrifað og greitt á brunabótaverði eins og þá tíðkaðist.
Þegar þau Stefán fluttust til Eyja á ný, keyptu þau hús við Höfðaveg 7.
Þau ákváðu svo að kaupa fyrra húsið við Ásaveg 1976 og gerðu það upp nánast úr fokheldu ástandi.
Þau fluttust til Stokkseyrar, er Stefán tók við Hraðfrystihúsinu þar og bjuggu þar til ársins 1992.
Þá fluttust þau í Kópavog og bjuggu þar síðan.
Helga lést 2015.

Maður Helgu, (19. nóvember 1966), er Stefán Runólfsson fyrrum yfirverkstjóri og framkvæmdastjóri, f. 10. september 1933. Börn þeirra eru:
1. Sóley Stefánsdóttir, fyrsta lögreglukona í Eyjum, húsfreyja, uppeldisfræðingur, f. 13. ágúst 1967. Maður hennar er Þorsteinn Kristvinsson rafeindavirki og framkvæmdastjóri.
2. Smári Stefánsson forstöðumaður, f. 21. júní 1970. Kona hans er Guðrún Sæmundsdóttir húsfreyja, skrifstofukona.
3. Guðný Stefanía Stefánsdóttir íþróttafræðingur, kennari á Ísafirði, f. 12. september 1976. Maður hennar er Jón Hálfdán Pétursson íþróttafræðingur og kennari.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Morgunblaðið 10. september 2013.
  • Morgunblaðið 25. september 2015. Minning.
  • Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1850-1890. Margir höfundar, en aðalhöfundur: Guðmundur Sigurður Jóhannsson. Umsjón og ritstjórn: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1981-1999.
  • Stebbi Run – Annasamir dagar og ögurstundir. Óskar Þór Karlsson. Bókaútgáfan Hólar 2008.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.