Smári Stefánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Smári Stefánsson skrifstofustjóri hjá Slippfélaginu í Rvk fæddist 21. júní 1970.
Foreldrar hans Stefán Guðlaugur Runólfsson frá Búðarfelli, framkvæmdastjóri, f. 10. september 1933, og kona hans Gunnbjörg Helga Víglundsdóttir húsfreyja, f. 15. ágúst 1944, d. 18. september 2015.

Börn Helgu og Stefáns:
1. Sóley Stefánsdóttir, fyrsta lögreglukona í Eyjum, húsfreyja, uppeldisfræðingur, f. 13. ágúst 1967. Maður hennar er Þorsteinn Kristvinsson rafeindavirki og framkvæmdastjóri.
2. Smári Stefánsson skrifstofustjóri, f. 21. júní 1970. Kona hans er Guðrún Sæmundsdóttir húsfreyja, skrifstofukona.
3. Guðný Stefanía Stefánsdóttir íþróttafræðingur, kennari á Ísafirði, f. 12. september 1976. Maður hennar er Jón Hálfdán Pétursson íþróttafræðingur og kennari.

Þau Guðrún Jóna giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Kona Smára er Guðrún Jóna Sæmundsdóttir úr Rvk, húsfreyja, skrifstofukona, f. 28. apríl 1973. Foreldrar hennar Sæmundur Þór Guðmundsson, f. 30. júní 1946, d. 20. nóvember 2018, og Bára Jónasdóttir, f. 29. apríl 1945.
Börn þeirra:
1. Bertha María Smáradóttir, f. 9. júlí 1999.
2. Eva María Smáradóttir, f. 25. apríl 2003.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.