Helga Björnsdóttir (Nýju-Klöpp)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Björnsdóttir frá Stóra-Steinsvaði á Fljótsdalshéraði, húsfreyja fæddist 2. apríl 1931 og lést 17. febrúar 1994.
Foreldrar hennar voru Björn Björnsson bóndi, síðar á Eskifirði, f. 10. desember 1887, d. 9. júlí 1973 og kona hans Grímlaug Margrét Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 26. apríl 1899, d. 12. maí 1986.

Helga var með foreldrum sínum í æsku, en flutti til Eyja 15 ára, vann þar fyrir sér.
Helga var mikið í íþróttum á yngri árum, í handbolta og frjálsum íþróttum og átti um skeið Íslandsmet í kúluvarpi kvenna.
Þau Kristján giftu sig 1950, eignuðust átta börn, þar af tvenna tvíbura. Þau bjuggu í Mundahúsi við Vestmannabraut 25, á Helgafellsbraut 8, í Klöpp við Njarðarstíg 16 og Nýju-Klöpp við Faxastíg 11.
Kristján lést 1977 og Helga 1994.

I. Maður Helgu, (24. ágúst 1950), var Kristján Georgsson verslunarmaður, sjómaður, útgerðarmaður, f. 13. nóvember 1928, d. 12. apríl 1977.
Börn þeirra:
1. Georg Þór Kristjánsson, f. 25. mars 1950 á Kirkjuvegi 25, d. 11. nóvember 2001. Kona hans Kristrún Harpa Rútsdóttir.
2. Björn Kristjánsson, f. 13. júlí 1951 á Sjúkrahúsinu, d. 17. september 2021. Kona hans Sigrún Sigurðardóttir. Sambúðarkona hans Margrét Sigrún Skúladóttir.
3. Guðfinna Sigríður Kristjánsdóttir, f. 17. nóvember 1953 í Sætúni við Bakkastíg 10. Maður hennar Hafsteinn Stefánsson.
4. Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir, f. 5. október 1958. Maður hennar Reynir Jóhannesson.
5. Mjöll Kristjánsdóttir, tvíburi, f. 15. desember 1959 í Klöpp við Njarðarstíg 16. Maður hennar Sigurjón Birgisson.
6. Drífa Kristjánsdóttir, tvíburi, f. 15. desember 1959 í Klöpp við Njarðarstíg 16. Maður hennar Björn Þorgrímsson.
7. Þór Kristjánsson, tvíburi, f. 27. nóvember 1961. Kona hans Eygló Guðmundsdóttir.
8. Óðinn Kristjánsson, tvíburi, f. 27. nóvember 1961. Kona hans Hulda Sæland Árnadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.