Óðinn Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Óðinn Kristjánsson, vélvirki, starfsmaður í Vinnslustöðinni fæddist 27. nóvember 1961.
Foreldrar hans Kristján Georgsson, f. 13. nóvember 1928, d. 12. apríl 1977, og kona hans Helga Björnsdóttir, húsfreyja, f. 2. apríl 1931, d. 17. febrúar 1994.

Börn Helgu og Kristjáns:
1. Georg Þór Kristjánsson, f. 25. mars 1950 á Kirkjuvegi 25, d. 11. nóvember 2001. Kona hans Kristrún Harpa Rútsdóttir.
2. Björn Kristjánsson, f. 13. júlí 1951 á Sjúkrahúsinu, d. 17. september 2021. Kona hans Sigrún Sigurðardóttir. Sambúðarkona hans Margrét Sigrún Skúladóttir.
3. Guðfinna Sigríður Kristjánsdóttir, f. 17. nóvember 1953 í Sætúni við Bakkastíg 10. Maður hennar Hafsteinn Stefánsson.
4. Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir, f. 5. október 1958. Maður hennar Reynir Jóhannesson.
5. Mjöll Kristjánsdóttir, tvíburi, f. 15. desember 1959 í Eyjum]. Maður hennar Sigurjón Birgisson.
6. Drífa Kristjánsdóttir, tvíburi, f. 15. desember 1959 í Eyjum. Maður hennar Björn Þorgrímsson.
7. Þór Kristjánsson, tvíburi, f. 27. nóvember 1961. Kona hans Eygló Guðmundsdóttir.
8.Óðinn Kristjánsson, tvíburi, f. 27. nóvember 1961. Fyrrum kona hans Halla Ruth Sveinbjörnsdóttir. Kona hans Hulda Sæland Árnadóttir.

Þau Halla Ruth giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Hulda Sæland giftu sig, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta ári þess. Þau búa við Illugagötu 42.

I. Fyrrum kona Óðins er Halla Ruth Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á Sólheimum í Grímsnesi, f. 29. september 1965.
Börn þeirra:
1. Sveinbjörn Kristinn Óðinsson, f. 2. desember 1984 í Eyjum.
2. Aníta Óðinsdóttir, f. 8. febrúar 1987 í Eyjum.

II. Kona Óðins er Hulda Sæland Árnadóttir, frá Selfossi, fulltrúi, f. 19. mars 1966. Foreldrar hennar Árni Sverrir Erlingsson, f. 3. júlí 1935, d. 2. júlí 2019, og Sigríður Sæland, f. 27. maí 1944.
Börn þeirra:
3. Árni Óðinsson, f. 3. ágúst 1994.
4. Sigríður Sæland Óðinsdóttir, f. 11. mars 1997.
5. Andri Snær Óðinsson, f. 3. maí 2003, d. 20. september 2003.
6. Breki Þór Óðinsson, f. 3. maí 2003.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.