Sólrún Unnur Harðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sólrún Unnur Harðardóttir, tanntæknir fæddist 1. október 1961.
Foreldrar hennar Hörður Runólfsson, frá Bræðratungu við Heimagötu 27, f. 4. október 1935, d. 3. október 2021, og kona hans Kristín Elísa Baldvinsdóttir, frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, húsfreyja, verslunarmaður, f. 19. ágúst 1936, d. 19. júlí 2003.

Börn Kristínar og Harðar:
1. Baldvin Þór Harðarson, f. 28. mars 1954. Fyrrum kona hans Halla Jónsdóttir. Kona hans Magdalene Lyberth.
2. Sólrún Unnur Harðardóttir, f. 1. október 1961. Barnsfaðir Albert Ólason, látinn. Fyrrum maður hennar Þór Kristjánsson. Barnsfaðir hennar Jónas Arnmundsson.
3. Smári Kristinn Harðarson, f. 19. ágúst 1965. Fyrrum kona hans Sigurlína Guðjónsdóttir. Sambúðarkona hans Marzena Jankowska.

Sólrún eignaðist barn með Alberti 1980.
Þau Þór giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Jónas hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Sólrún býr við Miðstræti 19.

I. Barnsfaðir Sólrúnar var Albert Ólason, sjómaður, f. 12. mars 1960, d. 17. febrúar 1981.
Barn þeirra:
1. Hörður Albertsson, f. 8. febrúar 1980.

II. Fyrrum maður Sólrúnar Unnar er Þór Kristjánsson, Baadermaður, vélstjóri, rafvirki, f. 27. nóvember 1961.
Barn þeirra:
2. Hrefna Dís Þórsdóttir, f. 8. september 1986.

III. Fyrrum sambúðarmaður Jónas Arnmundsson, matsveinn, f. 18. apríl 1964. Foreldrar hans Arnmundur Jónasson, f. 16. ágúst 1928, d. 20. nóvember 2009, og María Guðmundsdóttir, f. 12. maí 1930, d. 29. janúar 1982.
Barn þeirra:
3. Birkir Jónasson, f. 2. júní 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.