Björn Kristjánsson (Klöpp)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Björn Kristjánsson.

Björn Kristjánsson frá Nýju-Klöpp við Faxastíg 11, verkamaður, skipstjóri fæddist 13. júlí 1951 og lést 17. september 2021.
Foreldrar hans voru Kristján Georgsson, f. 13. nóvember 1928, d. 12. aðríl 1977, og kona hans Helga Björnsdóttir húsfreyja, f. 2. apríl 1931, d. 17. febrúar 1964.

Börn Helgu og Kristjáns:
1. Georg Þór Kristjánsson, f. 25. mars 1950 á Kirkjuvegi 25, d. 11. nóvember 2001. Kona hans Kristrún Harpa Rútsdóttir.
2. Björn Kristjánsson, f. 13. júlí 1951 á Sjúkrahúsinu, d. 17. september 2021. Sambúðarkona hans Margrét Sigrún Skúladóttir.
3. Guðfinna Sigríður Kristjánsdóttir, f. 17. nóvember 1953 í Sætúni við Bakkastíg 10. Maður hennar Hafsteinn Stefánsson.
4. Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir, f. 5. október 1958. Maður hennar Reynir Jóhannesson.
5. Mjöll Kristjánsdóttir, tvíburi, f. 15. desember 1959 í Klöpp við Njarðarstíg 16. Maður hennar Sigurjón Birgisson.
6. Drífa Kristjánsdóttir, tvíburi, f. 15. desember 1959 í Klöpp við Njarðarstíg 16. Maður hennar Björn Þorgrímsson.
7. Þór Kristjánsson, tvíburi, f. 27. nóvember 1961. Kona hans Eygló Guðmundsdóttir.
8. Óðinn Kristjánsson, tvíburi, f. 27. nóvember 1961. Kona hans Hulda Sæland Árnadóttir.

Björn var með foreldrum sínum til unglingsára.
Hann nam í Gagnfræðaskólanum, Vogaskóla í Reykjavík, í Reykjanesskóla, síðar lauk hann Stýrimannaskólanum í Reykjavík.
Björn vað sjómaður, var á bátum og togurum, var skipstjóri á Vatneyrinni.
Þau Sigrún giftu sig, eignuðust eitt barn, en skildu.
Þau Margrét Sigrún hófu sambúð. Þau eignuðust ekki börn saman, en Margrét hafði eignast þrjú börn.
Björn lést 2021 á Hjúkrunarheimilinu Slógarbæ.

I. Kona Björns var Sigrún Sigurðardóttir, f. 26. desember 1951, d. 24. júní 2011.
Barn þeirra:
1. Ólöf Helga Björnsdóttir, f. 14. apríl 1975. Maður hennar Jón Vigfússon.

II. Sambúðarkona Björns er Margrét Sigrún Skúladóttir, f. 25. október 1953.
Börn hennar:
2. Heiða, látin .
3. Ingvi Ómar.
4. Sighvatur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.