Hálfdan Þorsteinsson (Vattarnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hálfdan Þorsteinsson frá Vattarnesi, sjómaður, bóndi, verkamaður fæddist þar 27. september 1904 og lést 22. júlí 1981.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Hálfdanarson bóndi á Hafranesi, síðar útgerðarmaður í Eyjum, f. 3. desember 1877, d. 29. júlí 1946, og kona hans Sigurbjörg Indriðadóttir frá Vattarnesi, húsfreyja, f. 11. júní 1876, d. 19. febrúar 1923.

Börn Sigurbjargar og Þorsteins:
1. Jóhanna Hálfdanía Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1900, d. 12. september 1963.
2. Elín Aðalbjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1902, d. 16. ágúst 1974.
3. Hálfdan Þorsteinsson sjómaður, bóndi á Vattarnesi, f. 27. september 1904 á Vattarnesi. d. 22. júlí 1981.
4. Kristinn Indriði Þorsteinsson útvegsbóndi á Vattarnesi, f. þar 28. október 1907, d. 13. febrúar 1979.
5. Steingrímur Þorsteinsson, f. 29. júní 1916 á Vattarnesi, d. 15. febrúar 1931 Fóstursonur hjónanna
6. Þorsteinn Stefánsson, f. 31. maí 1919 í Skálavík í Fáskrúðsfirði, d. 19. maí 2005.

Hálfdan var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1930.
Hann var verkamaður í Eyjum.
Þau Guðbjörg giftu sig 1933 í Eyjum, eignuðust sex börn. Þau bjuggu á Staðarhóli við Kirkjuveg 57 og á Stóru-Heiði við Sólhlíð 19, fluttu að Kolmúla í Reyðarfirði 1940, voru síðan bændur á Vattarnesi við Reyðarfjörð til 1950, en þurftu þá að flytja á Reykjavíkursvæðið vegna berklaveiki Guðbjargar. Hún var sjúklingur á Vífilsstöðum í tvö ár. Þau Hálfdán bjuggu á Selvogsgötu 8 í Hafnarfirði, en stunduðu landbúnað og sjómennsku á sumrum á Kolmúla um skeið með Jónu Björgu og Guðjóni bróður Guðbjargar.
Hálfdan lést 1981.
Guðbjörg flutti á Álfaskeið og síðan á Sólvang. Hún lést 2000.

I. Kona Hálfdanar, (25. desember 1933 í Eyjum), var Guðbjörg Daníelsdóttir frá Kolmúla við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. þar 16. febrúar 1915, d. 1. janúar 2000.
Börn þeirra:
1. Guðný Hálfdanardóttir húsfreyja, ræstitæknir í Hafnarfirði, f. 26. febrúar 1934 á Staðarhóli, d. 13. júní 2019. Fyrrum maður hennar Jón Brynjólfsson. Maður hennar Guðmundur Þórðarson, látinn.
2. Helena Hálfdanardóttir húsfreyja, sjúkraliði í Reykjavík, f. 23. júní 1935 á Staðarhóli, d. 22. apríl 2014. Fyrrum maður hennar Rafn Benediktsson.
3. Sigurbjörg Hálfdanardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, sjúkraliði, húsvörður, f. 30. júlí 1942 í Kolmúla í Reyðarfirði, d. 10. mars 2007. Fyrrum maður hennar Ljótur Ingason.
4. Þorsteinn Hálfdanarson skipasmiður, slökkviliðsmaður, f. 12. október 1945. Kona hans Ásta Sigurðardóttir.
5. Steingrímur Hálfdanarson loftskeytamaður, f. 13. apríl 1949. Kona hans Jóhanna Þ. Ingimarsdóttir.
6. Daníel Hálfdanarson röntgentæknir, húsvörður, f. 2. ágúst 1954. Kona hans Erna Ingibjörg Pálsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.