Guðrún Tranberg Jakobsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Tranberg Jakobsdóttir frá Jakobshúsi, húsfreyja fæddist 17. mars 1890 í Eyjum og lést 6. febrúar 1975.
Foreldrar hennar voru Jakob Sandersen Larson Tranberg sjómaður, f. 7. ágúst 1860 í London, d. 21. maí 1945, og fyrri kona hans Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. nóvember 1862 á Bryggjum í A-Landeyjum, d. 21. nóvember 1906.

Börn Jakobs og Valgerðar:
1. Sæmundur Tranberg Jakobsson, f. 16. desember 1885, d. 22. mars 1888.
2. Guðrún Tranberg Jakobsdóttir húsfreyja, f. 17. mars 1890, d. 6. febrúar 1975.
3. Ágúst Jakobsson Tranberg smiður, f. 16. ágúst 1892, d. 21. október 1981. Hann fór til Vesturheims 1911 frá Lundi.
4. Sigurður Tranberg Jakobsson, f. 20. febrúar 1899, d. 28. febrúar 1899.
5. Valdimar Tranberg Jakobsson sjómaður, f. 25. október 1900, d. 9. apríl 1968.

Börn Jakobs og Guðbjargar síðari konu hans:
6. Magnúsína Tranberg Jakobsdóttir húsfreyja á Akranesi, f. 29. október 1910, d. 2. júní 1989.
7. Gísli Jakobsson bakari í Reykjavík, f. 22. desember 1913, d. 26. desember 1993.
8. Lars Tranberg Jakobsson, símvirki í Reykjavík, stöðvarstjóri á Rjúpnahæð 1947-1985, f. 31. maí 1916, d. 26. desember 2002.

Guðrún var með fjölskyldu sinni í Jakobshúsi 1901, var hjú hjá Sigurði í Nýborg 1910.
Hún var gift húsfreyja á Merkisteini í Patreksfirði 1920 og þar var Valdimar bróðir hennar vinnumaður.
Þau Guðrún, Kristján og Valdimar eru skráð brottflutt frá Patreksfirði til Eyja 1923, en hjónin finnast ekki í Eyjum.
Hún bjó síðast á Elliheimilinu Grund í Reykjavík. Hún lést 1975.

I. Maður Guðrúnar, (4. september 1915, skildu), var Kristján Jens Matthíasson sjómaður, vélstjóri, síðar fisksali á Akureyri og bóndi á Klifsá í Eyjafirði, f. 16. júlí 1893 í Feigsdal í Arnarfirði, d. 25. október 1969. Foreldrar hans voru Matthías Pétursson bóndi í Vestur-Botni í Rauðasandshreppi, V.Barð., f. 10. mars 1850 á Auðshaugi, V.Barð., d. 6. október 1929, og kona hans Oddný Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1868 á Ísafirði, d. 25. júlí 1944 á Patreksfirði.
Þau Kristján voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.