Guðmundur Jónsson (Sæbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gróa Helga Kristjánsdóttir og Guðmundur Jónsson.

Guðmundur Jónsson frá Sæbergi við Urðaveg 10, bóndi á Hólmi í A.-Landeyjum fæddist 26. febrúar 1916 á Sæbergi og lést 19. júlí 1964.
Foreldrar hans voru Jón Árnason sjómaður, síðar bóndi á Hólmi í A.-Landeyjum, f. 7. mars 1885 á Skíðbakka þar, d. 19. júlí 1964, og kona hans Ragnhildur Runólfsdóttir frá Suður-Fossi í Mýrdal, húsfreyja, f. þar 26. október 1888, d. 5. desember 1986 í Reykjavík.

Börn Ragnhildar og Jóns:
1. Ragnar Hólm Jónsson terrasólagningamaður í Reykjavík, f. 27. desember 1914, d. 9. júní 2001. Kona hans Sigríður Jónsdóttir, látin.
2. Guðmundur Jónsson bóndi í Hólmi í A.-Landeyjum, f. 26. febrúar 1916 á Sæbergi, d. 19. júlí 1964. Kona hans Gróa Kristjánsdóttir.
3. Ingólfur Jónsson bókhaldari, framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 25. júní 1920 á Arnarhóli, d. 13. janúar 2015. Kona hans Ingibjörg Björgvinsdóttir.
4. Ólafur Tryggvi Jónsson málarameistari og bóndi í Hemlu í V.-Landeyjum, f. 29. maí 1922, d. 3. desember 2009. Kona hans Magnea Helga Ágústsdóttir.
5. Árni Jónsson óperusöngvari, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 12. maí 1926, d. 29. júlí 2008. Fyrrum kona hans Sjöfn Sigurjónsdóttir. Kona hans Bjarney Valgerður Tryggvadóttir.
6. Ásta Guðlaug Jónsdóttir hússtjórnarkennari í Reykjavík, f. 16. ágúst 1927. Maður hennar Arnljótur Sigurjónsson.

Guðmundur var með foreldrum sínum, á Sæbergi, Arnarhóli og á Hómi í A.-Landeyjum.
Hann tók við búi á Hólmi 1946 og bjó þar til 1964, er hann lést af slysförum.
Guðmundur sat í stjórn Búnaðarfélags Austur Landeyja.
Þau Gróa Helga giftu sig 1946, eignuðust fimm börn.
Gróa bjó á Hólmi til 1983.
Hún lést 2007.

I. Kona Guðmundar, (7. desember 1946), var Gróa Helga Kristjánsdóttir frá Stöðvarfirði, S.-Múl., húsfreyja, bóndi, f. 13. febrúar 1915, d. 7. ágúst 2007. Foreldrar hennar voru Kristján Magnússon bóndi í Borgargerði í Stöðvarfirði, f. 16. júní 1876, d. 17. júní 1945, og kona hans Þóra Þorvarðardóttir húsfreyja, f. 31. janúar 1889, d. 14. nóvember 1955.
Börn þeirra:
1. Eygló Þóra Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 3. júní 1947. Maður hennar Guðmann H. Ingjaldsson.
2. Erla Ragnhildur Guðmundsdóttir skrifstofumaður, f. 3. júní 1947. Maður hennar Guðmundur Ásgeirsson.
3. Jóna Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjulæk, f. 30. mars 1954. Maður hennar Eggert Pálsson.
4. Garðar Guðmundsson bóndi á Hólmi, f. 12. nóvember 1955. Kona hans Guðrún Jónsdóttir.
5. Ásta Guðmundsdóttir húsfreyja á Arnarhóli í V.-Landeyjum, f. 12. nóvember 1955. Maður hennar Erlendur Guðmundsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.