Friðgeir Þór Þorgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Friðgeir Þór Þorgeirsson trésmiður fæddist 29. maí 1956 í Reykjavík.
Foreldrar hans Þorgeir Þorleifsson, f. 22. janúar 1916, d. 12. mars 1989, og Þorgerður Jónsdóttir, f. 26. september 1925, d. 3. ágúst 1994.

Friðgeir Þór lærði trésmíðar og hefur unnið við þær.
Þau Anna giftu sig 1977, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Foldahraun 5.

I. Kona Friðgeirs, (10. desember 1977), er Anna Davíðsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 17. ágúst 1955.
Börn þeirra:
1. Davíð Friðgeirsson iðnfræðingur, f. 13. október 1978 í Eyjum. Kona hans Bryndís Snorradóttir Jónssonar.
2. Guðrún Lilja Friðgeirsdóttir leikskólakennari, f. 1. mars 1983 í Eyjum. Sambúðarmaður hennar Þröstur Jóhannsson Jónssonar.
3. Þorgeir Þór Friðgeirsson sjómaður, háseti á Herjólfi, f. 14. apríl 1990 í Eyjum. Sambúðarkona hans Elín Inga Halldórsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið. Minning Davíðs og Brynju.
  • Sjúkraliðar á Íslandi 1966-1996. Ritstjóri: Sigurður Hermundarson. Mál og mynd 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.