Erna Sigurlásdóttir (Reynistað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Erna Sigurlásdóttir frá Reynistað, húsfreyja, verkakona fæddist 23. september 1947 og lést 19. júní 1989.
Foreldrar hennar voru Sigurlás Þorleifsson sjómaður, verkamaður, f. 13. ágúst 1893, d. 26. nóvember 1980, og kona hans Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907, d. 27. júlí 1992.

Barn Þuríðar og Ólafs Jónssonar:
1. Margrét Sigurlaug Ólafsdóttir, f. 31. júlí 1926 í Djúpadal í Hvolhreppi, d. 13. apríl 2015.

Börn Þuríðar og Sigurláss:
2. Eggert Sigurlásson, f. 20. febrúar 1929 á Rafnseyri, (Kirkjuvegi 12), d. 29. ágúst 1978.
3. Þorleifur Sigurlásson, f. 16. mars 1930 á Rafnseyri, d. 31. júli 2021.
4. Anna Sigurlásdóttir, f. 18. janúar 1933 á Hálsi v. Brekastíg, d. 2. janúar 2010.
5. Kristín Sigurlásdóttir, f. 28. apríl 1935 á Reynistað, d. 27. október 2020.
6. Ásta Sigurlásdóttir, f. 5. febrúar 1937 á Reynistað, d. 29. mars 2015.
7. Ólöf Sigurlásdóttir, f. 11. janúar 1939 á Reynistað.
8. Jóna Sigurlásdóttir, f. 11. júlí 1940 á Reynistað, d. 10. febrúar 2018.
9. Gústaf Sigurlásson, f. 19. september 1941 á Reynistað.
10. Helgi Sigurlásson, f. 8. janúar 1944 á Reynistað.
11. Andvana drengur, tvíburabróðir Helga, f. 8. janúar 1944.
12. Reynir Sigurlásson, f. 6. janúar 1946 á Reynistað, d. 1. mars 1979.
13. Erna Sigurlásdóttir, f. 23. september 1947 á Reynistað, d. 19. júní 1989.
14. Margrét Sigurlásdóttir, f. 1. janúar 1949 á Reynistað.
15. Geir Sigurlásson, f. 1. apríl 1950 á Reynistað.
16. Linda Sigurlásdóttir, f. 5. mars 1955 á Reynistað.

Barn Sigurláss og fyrri konu hans Rannveigar Guðlaugar Magnúsdóttur:
1. Margrét Freyja Sigurlásdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 29. júní 1921, d. 6. mars 1960.

Börn Sigurláss og Aðalheiðar Gísladóttur:
2. Hulda Sigurlásdóttir, f. 2. apríl 1924. Hún var í Langagerði í Hvolhreppi 1930, d. 31. október 2017.
3. Baldur Sigurlásson sjómaður, f. 26. júlí 1926, d. 28. júlí 1980.

Erna var með foreldrum sínum, en var í Austubæjarskóla í Reykjavík 1961-1963.
Hún vann hjá Ísfélaginu á yngri árum sínum.
Þau Ævar giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Akureyri, fluttu til Eyja 1970, bjuggu á Hásteinsvegi 56 við Gos 1973. Þau fluttu til Reykjavíkur í nokkra mánuði í Gosinu 1973, en þá vann Ævar í Eyjum. Þá fluttu þau til Akureyrar, bjuggu þar til 1983. Þá fluttu þau til Eyja, bjuggu við Bröttugötu 23.
Erna lést 1989. Ævar býr á Foldahrauni 42.

I. Maður Ernu, (apríl 1967), er Ævar Karlesson húsasmíðameistari, sjómaður, f. 25. júlí 1946.
Börn þeirra:
1. Kolbrún Lilja Ævarsdóttir húsfreyja, leiðbeinandi í skóla, nú starfsmaður á líkamsræktarstöð, f. 26. maí 1968. Maður hennar Sigurður Líndal Sveinsson.
2. Linda Hrönn Ævarsdóttir húsfreyja, starfsmaður á barnaheimili, f. 6. maí 1969. Maður hennar Gylfi Anton Gylfason.
3. Þuríður Sif Ævarsdóttir býr á Eskifirði, aðstoðarverslunarstjóri, f. 22. nóvember 1974. Sambúðarkona Helga Björk Einarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.