Dráttarbraut Vestmannaeyja
Þann 21. maí árið 1925 var settur fundur á Borg með þeim tilgangi að koma á fót félagsskap til að byggja slipp eða dráttarbraut í Vestmannaeyjum fyrir litla báta og skip. Á fundinn mættu:
- Gunnar Ólafsson konsúll Vík,
- Jón Sverrisson yfirfiskmatsmaður Háagarði,
- Jón Ólafsson útgerðarmaður Hólmi,
- Stefán Björnsson útgerðarmaður Skuld,
- Jóhann Þ. Jósefsson alþingismaður Fagurlyst,
- Helgi Benediktsson kaupmaður Hörgsholti,
- Þorsteinn Jónsson kaupmaður Jómsborg,
- Ársæll Sveinsson útgerðarmaður Fögrubrekku,
- Guðmundur Jónsson Háeyri,
- Gunnar Marel Jónsson Brúarhúsi,
- Hannes Hansson Hvoli,
- Ólafur Ingileifsson Víðivöllum,
- Jón Jónsson Hlíð,
- Sigurður Ingimundarson Skjaldbreið,
- Guðjón Jónsson Heiði.
Fékk félagið nafnið Dráttarbraut Vestmannaeyja hf. og er með elstu hlutafélögum í Vestmannaeyjum. Eftir að búið var að stofna félagið var Gunnar Marel Jónsson forstöðumaður. Ákveðið var að senda hann til Noregs til þess að leita eftir tilboði í braut handa félaginu. Ferðin gekk vel og fyrirtækið Mjölnir í Bergen smíðaði vagninn og spilið. Fyrsti báturinn var tekinn upp um haustið 1925. Hann hét Garðar. Í honum átti Filippus Árnason hlut, en hann átti einnig síðasta bátinn sem fór á flot af þessari braut þrjátíu og fjórum árum seinna, Létti. Dráttarbraut Vestmannaeyja þjónustaði bátaflotann í Vestmannaeyjum í um 60 ár.
Heimildir
- Eggert Gunnarsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985.