Dagmar Ólafsdóttir (Bifröst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Dagmar Ólafsdóttir frá Bifröst, húsfreyja fæddist 2. júní 1910 á Seyðisfirði og lést 10. október 1987.
Foreldrar hennar voru Ólafur Ólafsson skipstjóri, f. 6. ágúst 1880 á Traðarbakka í Akraneshreppi, fórst með Rigmor á Biskæjaflóa 1918, og kona hans Guðrún Guðjónsdóttir frá Hofi í Norðfirði, húsfreyja, f. 14. nóvember 1881, d. 29. ágúst 1952.

Börn Ólafs og Guðrúnar voru:
1. Indíana Ólafsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1905 í Reykjavík, d. 14. október 1967. Maður hennar var Jón Bergmann Bjarnason vélstjóri.
2. Dagmar Ólafsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1910 á Seyðisfirði, d. 10. október 1987. Maður hennar var Jón Bjarnason skrifstofustjóri.
3. Unnur Ólafsdóttir húsfreyja, f. 10. júlí 1915, d. 27. júlí 1975. Maður hennar var Gísli Jakobsson bakarameistari.
4. Haukur Ólafsson skipstjóri, verslunarstjóri, f. 18. febrúar 1917 í Eyjum, d. 26. desember 2012. Kona hans var Valborg Jónína Jónsdóttir húsfreyja, starfsmaður Kaupfélagsins Fram í Neskaupstað, f. 5. október 1926, d. 7. júlí 2016.

Dagmar missti föður sinn 8 ára gömul.
Hún var með móður sinni í Bifröst og fluttist með henni til Hafnarfjarðar 1922.
Þau Jón eignuðust Ólöfu 1926, giftu sig 1930 og bjuggu í Reykjavík, eignuðust þrjú börn.
Dagmar lést 1987 og Jón 1988.

I. Maður Dagmarar, (1930), var Jón Bjarnason símritari, fulltrúi, skrifstofustjóri, f. 7. maí 1904, d. 10. september 1988.
Börn þeirra:
1. Ólöf Jónsdóttir Egilsson húsfreyja, tannfræðingur í Chicago, f. 2. janúar 1926, d. 14. mars 2006 . Maður hennar var Valur Egilsson tannlæknir.
2. Gunnar Jónsson fyrrv. starfsmaður Orkustofnunar, f. 24. febrúar 1933. Kona hans er Helga Erla Hjartardóttir húsfreyja.
3. Inga Birna Jónsdóttir kennari, rithöfundur, skáld, kennari í Danmörku, f. 17. september 1934, d. 10. september 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.