Þorgrímur Guðmundsson (Húsadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst Þorgrímur Guðmundsson.

Ágúst Þorgrímur Guðmundsson sjómaður, verkamaður í Húsadal fæddist 16. ágúst 1892 að Háamúla í Fljótshlíð og lést 6. febrúar 1966.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson bóndi, refaskytta, f. 2. október 1861, d. 11. mars 1937, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1850, d. 17. júní 1940.

Þorgrímur var með foreldrum sínum í bernsku.
Hann fór ungur í verið og 14 ára gamall var hann sendur til sjóróðra suður í Garð. Upp frá því var sjómannsstarfið hans aðalstarf.
Hann réri margar vertíðir í Þorlákshöfn og ungur að árum fór hann á vertíð til Eyja.
Þau Pálína giftu sig 1916, eignuðust fjórtán börn, en tvö þeirra fæddust andvana.
Þau bjuggu í fyrstu með foreldrum Þorgríms að Háamúla og þar fæddust þrjú fyrstu börn þeirra, en urðu síðan bændur á Ormsvelli í Hvolhreppi og þar fæddust þeim þrjú börn.
Hjónin fluttust til Eyja 1922 með fimm börn, en tvö urðu eftir í fóstri. Fyrsta árið bjuggu þau á Sólbrekku, en 1923 voru þau komin í Húsadal, eignuðust þar sjö börn, en tvö þeirra fæddust andvana. Þau voru komin í Bræðraborg 1940 og voru þar enn 1949.
Síðustu ár sín voru þau með Alfreð syni sínum í Ártúni við Vesturveg.
Guðný Pálína lést 1959 og Ágúst Þorgrímur 1966.

Kona hans, (1916), var Guðný Pálína Pálsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1891 að Hlíðarenda í Fljótshlíð, d. 19. júlí 1959.
Börn þeirra:
1. Alfreð Bachmann Þorgrímsson vélstjóri, afgreiðslumaður, f. 23. nóvember 1914 að Háamúla í Fljótshlíð, d. 25. ágúst 1978.
2. Laufey Þorgrímsdóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 17. október 1915, d. 15. júlí 1981. Maður hennar var Sigurður Hermann Agnar Jónsson, f. 2. nóvember 1905, d. 31. maí 1975.
3. Sigurður Ágústsson bóndi í Borgarkoti á Skeiðum, f. 22. september 1916 að Háamúla í Fljótshlíð, d. 13. janúar 1988.
4. Margrét Ágústa Ágústsdóttir ráðskona í Reykjavík, f. 14. nóvember 1918 á Ormsvelli í Hvolhreppi, d. 11. júlí 2008.
5. Þuríður Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. nóvember 1920 á Ormsvelli, Hvolhreppi, d. 22. desember 1992.
6. Sigríður Þorgrímsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 29. október 1921 á Ormsvelli í Hvolhreppi, d. 3. maí 1993. Maður hennar var Sölvi Ólafsson.
7. Hulda Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. október 1922, d. 20. júlí 1984.
8. Valgerður Oddný Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. apríl 1924 í Húsadal, d. 7. júlí 2012.
9. Andvana drengur, f. 26. mars 1926 í Húsadal.
10. Einar Ágústsson bifreiðastjóri, f. 13. apríl 1927 í Húsadal, d. 18. september 1984.
11. Sveinbjörg Þorgrímsdóttir verkakona, f. 28. júní 1929 í Húsadal, d. 20. ágúst 1949.
12. Svanhvít Þorgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, borgarstarfsmaður, f. 21. september 1930 í Húsadal, d. 1. október 1989.
13. Andvana stúlka, f. 7. nóvember 1933 í Húsadal.
14. Hallgrímur Þorgrímsson bifreiðastjóri, strætisvagnastjóri í Reykjavík, f. 26. desember 1936 í Húsadal, d. 3. maí 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.