Ólöf G. Árnadóttir (Kirkjuhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólöf Guðríður Árnadóttir frá Skammadalshóli í Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 23. febrúar 1884 og lést 17. mars 1972.
Foreldrar hennar voru Árni Árnason bóndi, f. 6. febrúar 1850 á Brekkum í Mýrdal, d. 24. júní 1897 í Fjósum þar, og kona hans Guðríður Jónsdóttir frá Reynisdal í Mýrdal, húsfreyja, f. 1. september 1853, d. 21. febrúar 1928 í Norður-Hvammi þar.

Börn Guðríðar og Árna - í Eyjum:
1. Ólöf Guðríður Árnadóttir, f. 23. febrúar 1884, d. 17. mars 1972.
2. Steinunn Árnadóttir húsfreyja í Mörk, f. 12. júlí 1892, d. 6. september 1971.

Ólöf var með foreldrum sínum til 1887, í Stóra-Dal 1887-1896, í Fjósum 1896-1900, var hjá móður sinni í Neðri-Dal 1900-1903, hjá bróður sínum þar 1903-1911, í Norður-Hvammi 1911-1913, vinnukona á Höfðabrekku 1913-1914, í Norður-Hvammi 1914-1916. Hún var bústýra í Vík 1916-1917, á Ketilsstöðum 1917-1920.
Ólöf fór til Eyja 1920.
Þau Björn giftu sig 1921, eignuðust sex börn, en misstu þrjú þeirra ung. Auk þess fóstruðu þau barn. Þau bjuggu á Sælundi, í Nikhól, á Kirkjuhól og Fögruvöllum, flutti til Stokkseyrar 1927 og á Seltjarnarnes 1930, bjuggu síðan í Reykjavík.
Ólöf lést 1972 og Björn 1982.

I. Maður Ólafar, (27. janúar 1921), var Björn Ketilsson frá Ketilsstöðum í Mýrdal, sjómaður, verkamaður, húsasmíðameistari, f. þar 21. ágúst 1896, d. 24. apríl 1982.
Börn þeirra:
1. Halldór Guðjón Björnsson, f. 17. júlí 1921 á Sælundi, d. 2. ágúst 1921.
2. Ragnhildur Björnsdóttir, f. 1. desember 1922 í Nikhól, d. 1. ágúst 1923.
3. Ragna Klara Björnsdóttir húsfreyja, ræstitæknir í Reykjavík, f. 31. maí 1924 á Kirkjuhól, d. 19. júní 2009.
4. Árni Gunnar Björnsson vélvirki, f. 24. október 1925 á Fögruvöllum, d. 17. febrúar 2007.
5. Óskar Björnsson, f. 31. mars 1927, d. 1. apríl 1927.
6. Halldór Guðjón Björnsson verkalýðsleiðtogi, f. 16. ágúst 1928, d. 8. febrúar 2019.
Fósturbarn þeirra:
7. Guðmunda Jóna Margrét Guðmundsdóttir frá Stapa, húsfreyja, f. 19. desember 1922, d. 10. október 1984.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.