Ásta Ólafsdóttir (Breiðavík)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Ólafsdótttir húsfreyja í Breiðavík fæddist 8. september 1904 á Sauðárkróki og lést 15. desember 1985.
Foreldrar hennar voru Ólafur Helgi Jensson frá Innri-Veðrará í Önundarfirði, póstmeistari í Eyjum, f. 8. janúar 1879 á Kroppsstöðum þar, d. 11. júní 1948, og kona hans Lilja Haraldsdóttir frá Bjarnastöðum í Akrahreppi í Skagaf., húsfreyja, f. þar 8. nóvember 1882, d. 3. desember 1954.

Börn Lilju og Ólafs:
1. Ásta Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 8. september 1904, d. 3. desember 1985. Maður hennar Oddgeir Hjartarson.
2. Haraldur Ólafsson sjómaður, f. 23. apríl 1906, drukknaði 14. maí 1922.
3. Jens Sigurður Ólafsson bifreiðastjóri, f. 19. maí 1909, d. 23. febrúar 1992. Kona hans Kristný Jónína Valdadóttir.
4. Baldur Ólafsson bankastjóri, f. 2. ágúst 1911, d. 27. desember 1988. Kona hans var Jóhanna Andrea Ágústsdóttir.

Ásta var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1927.
Þau Oddgeir giftu sig 1927, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Hörgsholti við Skólaveg 10 1927, á Skjaldbreið við Urðaveg 36 1929, í Eystra Stakkagerði 1930, en lengst í Breiðavík við Kirkjuveg 82.
Ólafur lést 1959 og Ásta 1985.

Maður Ástu, (22. september 1927 á Siglufirði), var Oddgeir Hjartarson rafvirkjameistari, f. 15. júní 1902 í Eystri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, d. 11. ágúst 1959 á Landspítalanum.
Börn þeirra:
1. Guðbjörg Oddgeirsdóttir húsfreyja, f. 8. desember 1927, d. 5. maí 2010.
2. Ólafur Haraldur Oddgeirsson rafvirkjameistari, f. 30. mars 1929.
3. Lilja Goðmunda Oddgeirsdóttir (Stúlla) húsfreyja, f. 3. júní 1931, d. 25. október 1997.
4. Hjördís Oddgeirsdóttir húsfreyja, f. 5. júlí 1932, d. 22. mars 1994.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.