Skúli Úranusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Skúli Úranusson bifreiðastjóri fæddist 23. maí 1956 í Skógum og lést 10. maí 2022.
Foreldrar hans voru Úraníus Guðmundsson vélstjóri, f. 28. desember 1914 í Reykjavík, d. 17. júní 1968, og kona hans Jórunn Lilja Magnúsdóttir frá Ólafshúsum, húsfreyja, f. 5. desember 1919 í Dvergasteini, d. 14. febrúar 2008.

Börn Lilju og Úraníusar:
1. Viktor Þór Úraníusson trésmiður í Eyjum og á Reykjalundi, f. 27. janúar 1942 á Bjarmalandi, Flötum 10, d. 27. ágúst 2020.
2. Pálína Úranusdóttir fiskiðnaðarkona, starfskona í Hraunbúðum, f. 5. september 1950 í Reykjavík.
3. Gylfi Þór Úranusson vélstjóri, f. 10. nóvember 1953 á Bessastíg 8, d. 30. september 2012.
4. Jón Trausti Úranusson, vinnuvélastjóri, f. 9. júní 1952 á Sjúkrahúsinu, dó af slysförum í hlíðum Eldfells 28. júní 1993.
5. Skúli Úranusson, bifreiðastjóri, f. 23. maí 1956 í Skógum, d. 10. maí 2022.
6. Oddgeir Magnús Úranusson, sjómaður, vinnuvélastjóri, f. 30. október 1958 á Sjúkrahúsinu.

Skúli var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hans lést, er Skúli var tólf ára.
Hann bjó með móður sinni, hóf snemma störf í fiskiðnaði í Fiskiðjunni, varð bifreiðastjóri þar og síðan hjá Vinnslustöðinni, en að síðustu var hann bifreiðastjóri hjá Olíudreifingu hf.
Skúli bjó að Boðaslóð 6. Hann var ókvæntur og lést 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.