Jón Trausti Úranusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Trausti Úranusson tækjamaður fæddist 19. júní 1952 og lést 28. júní 1993.
Foreldrar hans voru Úraníus Guðmundsson vélstjóri, f. 28. desember 1914 í Reykjavík, d. 17. júní 1968, og kona hans Jórunn Lilja Magnúsdóttir frá Ólafshúsum, húsfreyja, f. 5. desember 1919 í Dvergasteini, d. 14. febrúar 2008.

Börn Lilju og Úraníusar:
1. Viktor Þór Úraníusson trésmiður í Eyjum og á Reykjalundi, f. 27. janúar 1942 á Bjarmalandi, Flötum 10, d. 27. ágúst 2020.
2. Pálína Úranusdóttir fiskiðnaðarkona, starfskona í Hraunbúðum, f. 5. september 1950 í Reykjavík.
3. Gylfi Þór Úranusson vélstjóri, f. 10. nóvember 1953 á Bessastíg 8, d. 30. september 2012.
4. Jón Trausti Úranusson, vinnuvélastjóri, f. 9. júní 1952 á Sjúkrahúsinu, dó af slysförum í hlíðum Eldfells 28. júní 1993.
5. Skúli Úranusson, bifreiðastjóri, f. 23. maí 1956 á Bessastíg 8, d. 10. maí 2022.
6. Oddgeir Magnús Úranusson, sjómaður, vinnuvélastjóri, f. 30. október 1958 á Sjúkrahúsinu.

Jón Trausti var með foreldrum sínum í æsku, en hann missti föður sinn, er hann var 16 ára. Hann bjó með móður sinni að Boðaslóð 6.
Hann varð starfsmaður Viðlagasjóðs á Gosárinu 1973 og vann við hreinsun kirkjugarðsins, gerðist síðan starfsmaður Áhaldahúss bæjarins. Hann var tækjamaður, stjórnaði vinnuvélum.
Hann vann við uppgræðslu í hlíðum Eldfells, er vél, sem hann stjórnaði valt og varð hann undir henni og lést.
Jón Trausti lést 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.