Einar Lárusson (málarameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Einar Lárusson.

Einar Lárusson á Þorvaldseyri, málarameistari fæddist 20. mars 1893 í Álftagróf í Mýrdal og lést 5. maí 1963.
Faðir Einars var Lárus (Lárus Mikael Pálmi) bóndi að Álftagróf, f. 24. júlí 1856, d. 3. janúar 1939, Finnsson bónda í Álftagróf 1870, 73 ára ekkill hjá Lárusi í Álftagróf 1890, f. 13. ágúst 1817, d. 25. desember 1893, Þorsteinssonar frá Áshól í Holtum, bónda á Vatnsskarðshólum 1816, f. 1746, d. 9. júlí 1834, Eyjólfssonar og síðari konu Þorsteins, Margrétar húsfreyju, f. 1788 á Skagnesi í Mýrdal, d. 13. júlí 1819, Guðmundsdóttur.
Þorsteinn Eyjólfsson var langafi Guðrúnar Þórðardóttur húsfreyju í Túni, með fyrstu konu sinni, Karítas Jónsdóttur. Guðrún var móðir Guðjóns á Oddsstöðum, Vigfúsar í Holti, Jóhanns á Brekku og Sigurlínar í Túni, konu Bjarna Björnssonar.
Móðir Lárusar í Álftagróf og kona Finns var Guðrún húsfreyja, f. 4. september 1826 í Reykjavíkursókn, fósturbarn á Blómsturvöllum í Kálfafellssókn 1835 og 1845, d. 19. október 1884, Sigmundsdóttir, f. 1776, d. 1826, Jónssonar og konu Sigmundar, Birgit (Birgitta Hjálmarsen), f. 1795, d. 16. nóvember 1846, Halldórsdóttur bónda og hreppstjóra á Eymu í Selvogi 1801, Þórðarsonar. Seinni maður Birgittu var sr. Þorsteinn Erlendsson Hjálmarsen prestur í Hítardal í Hraunhreppi, Mýrasýslu.

Móðir Einars Lárussonar og kona Lárusar í Álftagróf var Arnlaug húsfreyja í Álftagróf 1901, f. 18. apríl 1867, d. 6. mars 1940, Einarsdóttir bónda í Steinum undir Eyjafjöllum 1870, f. 2. janúar 1832, d. 7. desember 1899, Einarssonar bónda í Ystaskála 1845, f. 19. júní 1792, d. 14. desember 1878, Sighvatssonar, og konu Einars Sighvatssonar, Arnlaugar Sveinsdóttur, f. 19. mars 1796, d. 25. júlí 1866.
Móðir Arnlaugar í Álftagtróf og kona Einars í Steinum var Guðfinna húsfreyja, f. 3. ágúst 1834 í Eyjum, d. 22. apríl 1907, Vigfúsdóttir bónda í Stakkagerði Bergssonar og konu Vigfúsar Bergssonar í Stakkagerði, Sigríðar húsfreyju, f. 1801 í Úlfsstaðahjáleigu í A-Landeyjum, d. 4. desember 1897 í Túni í Eyjum, Einarsdóttur.

Guðfinna Vigfúsdóttir var systir Jóns Vigfússonar í Túni, föður áðurnefndra systkina, barna hans og Guðrúnar Þórðardóttur í Túni.

Systir Einars Lárussonar var
Guðfinna Lárusdóttir húsfreyja á Sælundi, f. 12. júlí 1897 í Álftagróf, d. 30. nóvember 1956.
Föðurbróðir Einars Lárussonar var
Sigmundur Finnsson í Uppsölum, f. 6. mars 1859, d. 16. janúar 1942.

Einar var með foreldrum sínum til 1920, en þá fluttist hann til Eyja, bjó í fyrstu á Rauðafelli.
Hann lærði málaraiðn hjá Engilbert Gíslasyni, fékk sveinsbréf og meistarabréf.
Einar var umsvifamikill í iðninni og rak málningarverslun á Þorvaldseyri við Vestmannabraut 35.
Þau Sigrún giftu sig 1920, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu í Tungu, Heimagötu 4, á Reynivöllum, Kirkjuvegi 66 1924 og 1927, en voru komin á Þorvaldseyri 1930 og þar fæddist síðasta barn þeirra 1930.
Sigrún missti heilsuna og dvaldi árum saman á sjúkrahúsi í Reykjavík. Hún lést 1956 og Einar 1963.

I. Kona Einars, (4. september 1920), var Sigrún Vilhjálmsdóttir frá Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi, Hnapp., húsfreyja, f. 29. september 1897, d. 19. janúar 1956.
Börn þeirra:
1. Lárus Sigurfinnur Einarsson verslunarmaður, f. 23. mars 1922 í Tungu, d. 18. ágúst 1980.
2. Haraldur Arnór Einarsson kennari, auglýsingateiknari, myndlistarmaður, síðast í Hveragerði, f. 17 júlí 1924 á Reynivöllum, d. 16. apríl 2005.
3. Bragi Einarsson málarameistari, f. 27. apríl 1930 á Þorvaldseyri, d. 24. júlí 2002.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.