Sigurlín Jónsdóttir (Túni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurlín Jónsdóttir húsfreyja í Túni fæddist 20. júlí 1882 og lést 8. september 1935.
Foreldrar hennar voru Jón bóndi í Túni, f. 12. september 1836, d. 1908, og kona hans Guðrún Þórðardóttir húsfreyja.

Maður Sigurlínar (5. nóvember 1904) var Bjarni bóndi í Túni Björnsson.
Börn Sigurlínar og Bjarna:
1. Guðrún húsfreyja á Heiði, f. 31. júlí 1904, d. 2. apríl 1971, kona Helga Guðlaugssonar.
2. Ólafur Bjarnason, f. 8. maí 1908, d. 13. desember 1908.
3. Ólafía, f. 3. desember 1909, d. 1. júní 1994, kona Erlendar í Ólafshúsum.
Fóstursonur þeirra var
4. Árni Ólafsson fiskimatsmaður í Túni, f. 5. september 1898, d. 22. september 1959.
Fóstursonur Sigurlínar 1930 var
5. Guðmundur Helgason, f. 15. desember 1924, d. 18. nóvember 1947.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.