Vestmannaeyjar, stutt lýsing.

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 13:58 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 13:58 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Vestmannaeyjar liggja um 10 km suður undan Landeyjasandi. Eyjaþyrpingin samanstendur af 14 eyjum og auk þeirra eru um 30 drangar og sker. Eyjarnar eru sæbrattar og víðast hvar þaktar graslendi. Af þeim er Heimaey lang stærst eða um 13.3 km2 og hún er sú eina sem er í byggð. Helstu og stærstu eyjarnar í kringum Heimaey eru Elliðaey og Bjarnarey norðaustur af Heimaey og til suðvesturs Suðurey, Álsey, Brandur, Hellisey og Surtsey. Eyjarnar eru ungar á jarðsögulegan mælikvarða og hafa allar myndast í eldgosum, þær elstu fyrir u.þ.b. 12 þúsund árum. Margar hverjar eru gíglaga og á sumum eru gjallgígar. Vestmannaeyjar eru á umfangs-miklu eldgosasvæði sem er um 38 km langt og 30 km breitt með 70-80 eldstöðvum eða leifum þeirra. Hér á eftir verður fjallað um helstu og stærstu eyjar og sker í kerfinu.