Sigríður Sigurðardóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 21:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2015 kl. 21:13 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Uppsölum, fæddist 4. mars 1873 í Búðarhólshjáleigu í A-Landeyjum og lést 13. apríl 1956.
Foreldrar hennar voru Sigurður Guðmundsson bóndi á Lágafelli þar, f. 13. ágúst 1842, d. 11. mars 1905 á Uppsölum í Eyjum, og kona hans Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja á Lágafelli, f. 18. október 1839, d. 25. maí 1899.

Sigríður fluttist til Eyja 1898. Hún var búandi ekkja á Uppsölum eystri í Eyjum 1901. Þar eru einnig Þórunn Sigríður Hreinsdóttir, dóttir hennar og Sigurður Guðmundsson faðir hennar.
Við manntal 1910 er hún gift húsfreyja á Uppsölum með Lofti Þogeirssyni manni sínum og dætrum þeirra Þóroddu Vigdísi og Svanhvíti og dóttur hennar Þórunni Sigríði Hreinsdóttur,. Þar eru einnig foreldrar Lofts, Þorgeir Magnússon og Málfríður Loftsdóttir.
Við manntal 1920 eru þau Loftur búandi á Uppsölum, ásamt Þórunni Sigríði dóttur hennar og Svanhvíti dóttur þeirra. Þá er Þórodda Vigdís vinnukona í Bræðraborg.

Sigríður á Uppsölum var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Hreinn Þórðarson á Uppsölum, f. 6. desember 1870, d. 20. maí 1901.
Barn þeirra var:
1. Þórunn Sigríður Hreinsdóttir, f. 4. nóvember 1899, d. 27. júlí 1923.
II. Síðari maður hennar, (1904), var Loftur Þogeirsson útvegsbóndi, sjómaður, verkamaður á Uppsölum, f. 18. október 1878, d. 23. desember 1964.
Börn þeirra:
2. Þórodda Vigdís Loftsdóttir húsfreyja í Bræðraborg, f. 12. ágúst 1905, d. 29. júlí 1986, gift Valdimar Ástgeirssyni málara frá Litlabæ.
3. Svanhvít Loftsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1909, d. 18. febrúar 1988, gift Þórði Einarssyni sjómanni frá Stokkseyri, f. 31. mars 1906, drukknaði 1. mars 1928.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.