„Sigríður Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Sigríður Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
Sigríður var hálfsystir Hjálmars Eiríkssonar í Efri-Rotum u. Eyjafjöllum, en hann var faðir:

Sigríður var hálfsystir Hjálmars Eiríkssonar í Efri-Rotum u. Eyjafjöllum, en hann var faðir:

1. [[Eiríkur Hjálmarsson|Eiríks kennara]] á [[Vegamót]]um.

1. [[Eiríkur Hjálmarsson|Eiríks kennara]] á [[Vegamót]]um.

2. [[Þorgerður Hjálmarsdóttir (Dölum)|Þorgerður í Dölum]], kona [[Jón Gunnsteinsson (Dölum)|Jóns Gunnsteinssonar]].

2. [[Þorgerður Hjálmarsdóttir (Dölum)|Þorgerðar í Dölum]], konu [[Jón Gunnsteinsson (Dölum)|Jóns Gunnsteinssonar]].

3. [[Helgi Hjálmarsson (Hamri)|Helga Hjálmarssonar]], – að [[Hamar|Hamri]].

3. [[Helgi Hjálmarsson (Hamri)|Helga Hjálmarssonar]], – að [[Hamar|Hamri]].

4. [[Sigurbjörg Hjálmarsdóttir (Oddhól)|Sigurbjargar Hjálmarsdóttur]], konu [[Ólafur Guðmundsson (Oddhól)|Ólafs Guðmundssonar]] í [[Oddhóll|Oddhól]].

4. [[Sigurbjörg Hjálmarsdóttir (Oddhól)|Sigurbjargar Hjálmarsdóttur]], konu [[Ólafur Guðmundsson (Oddhól)|Ólafs Guðmundssonar]] í [[Oddhóll|Oddhól]].

Útgáfa síðunnar 23. júlí 2014 kl. 13:32

Sigríður Eiríksdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1815 á Hafurbjararstöðum á Miðnesi, Gull. og lést 24. nóvember 1890.
Faðir hennar var Eiríkur bóndi, lengst á Ketilsstöðum í Mýrdal, f. 1795, Jónsson bónda á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafellli, Eiríkssonar, f. 1736, Jónssonar, og konu Eiríks, (f. 1736), Katrínar húsfreyju í Pétursey og Leirum, f. 1725, d. 19. janúar 1805, Jónsdóttur.
Móðir Eiríks á Ketilsstöðum og kona Jóns á Hrútafelli var Sigríður húsfreyja, f. 1769, Bjarnadóttir.

Móðir Sigríðar á Vilborgarstöðum og barnsmóðir Eiríks á Ketilsstöðum var Sigríður, síðar húsfreyja á Nýlendu í Hvalsnessókn í Gull., f. 25. júní 1791, d. 19. maí 1858, Vilhjálmsdóttir bónda á Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi, f. 1752, d. 23. september 1829, Ásgautssonar, og barnsmóður Ásgauts, Sigríðar frá Syðra-Apavatni í Grímsnesi, Árn., f. 1718, d. 13. maí 1792, Ásbjörnsdóttur.
Móðir Sigríðar á Nýlendu og kona Vilhjálms á Hafurbjarnarstöðum var Steinvör húsfreyja, f. 1752, d. 2. júlí 1822, Þórarinsdóttir bónda á Kotvelli í Hvolhreppi, Rang., f. 1702, d. 2. nóvember 1771, Guðnasonar, og konu Þórarins, Elínar húsfreyju, f. 1707, d. 8. nóvember 1783, Einarsdóttur.

Sigríður var hálfsystir Hjálmars Eiríkssonar í Efri-Rotum u. Eyjafjöllum, en hann var faðir:
1. Eiríks kennara á Vegamótum.
2. Þorgerðar í Dölum, konu Jóns Gunnsteinssonar.
3. Helga Hjálmarssonar, – að Hamri.
4. Sigurbjargar Hjálmarsdóttur, konu Ólafs Guðmundssonar í Oddhól.
5. Guðrúnar Hjálmarsdóttur á Akri, konu Guðmundar Þórðarsonar.

Sigríður Eiríksdóttir var á Hrútafelli u. Eyjafjöllum 1816.
Hún var húsfreyja í Helgahjalli 1840, gift Einari Hallssyni járnsmið og bónda. Þau misstu börn sín skömmu eftir fæðingu þeirra 1840 og 1841, og Einar drukknaði 1842.
Sigríður var ekkja 1843, er hún eignaðist barn með Sigurði Sigurðssyni, en það barn missti hún eftir 13. daga.
Hún var húsfreyja á Vilborgarstöðum 1845, gift Jóni Sigurðssyni sjómanni. Með þeim var Vigdís Jónsdóttir, dóttir þeirra eins árs. 1850 voru þau þar enn, Vigdís 6 ára. Vinnukona var Sigþrúður Ormsdóttir 16 ára.
Jón Sigurðsson, maður Sigríðar, lést 1852.
Elín dóttir Sigríðar og Jóns Jónssonar fæddist 1854 og Sigurður 1859.
Sigríður var ekkja í þriðja sinn 1869, er Jón Jónsson lést.
1870 var hún í heimilinu hjá Vigdísi dóttur sinni og Árna Árnasyni.
Árni fórst 1874 og 1880 var Sigríður 67 ára á sveit í Presthúsum hjá Jóni Jónssyni og Ingibjörgu Stefánsdóttur.
Hún var ekkja hjá Sigurði syni sínum og Ástríði á Löndum 1890 og lést á árinu.

Sigríður var þrígift og átti börn með 4 mönnum:
I. Fyrsti maður hennar, (28. maí 1840), var Einar Hallsson, f. um 1805, drukknaði 20. mars 1842.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Einarsson, f. 3. október 1840.
2. Elísabet Einarsdóttir, f. 11. október 1841, d. 20. október 1841.

II. Barnsfaðir hennar var Sigurður Sigurðsson í Hólmfríðarhjalli 1843. Hún var þá skráð ekkja.
Barn þeirra var
3. Sigríður Sigurðardóttir, f. 19. október 1843, d. 2. nóvember 1843.

III. Annar eiginmaður hennar, (14. ágúst 1844), var Jón Sigurðsson sjómaður á Vilborgarstöðum, þá ekkill, f. 1802, d. 13. febrúar 1852.
Börn þeirra hér:
4. Vigdís Jónsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 10. júní 1845, lést Vestanhafs. Maður hennar hér á landi var Árni Árnason bóndi og sjómaður á Vilborgarstöðum.
5. Sigríður Jónsdóttir, f. 14. september 1851, d. 14. ágúst 1853.

IV. Síðasti maður hennar var Jón Jónsson bóndi og sjómaður á Vilborgarstöðum, f. 1816, d. 26. febrúar 1869.
Börn þeirra:
6. Andvana barn f. 13. júlí 1853.
7. Elín Jónsdóttir vinnukona, f. 23. nóvember 1854, niðursetningur í Landlyst 1870, vinnukona á Vilborgarstöðum 1880.
8. Jóhanna Jónsdóttir, f. 27. september 1857, f. 14. október 1857.
9. Sigurður Jónsson verkamaður á Löndum, f. 29. október 1859, d. 10. ágúst 1932. Kona hans var Ástríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1857, d. 20. júlí 1919.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
• Íslendingabók.is.
• Manntöl.
• Prestþjónustubækur.
• Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.