„Sandkoli“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
(Leiðrétt)
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá 1 notanda)
Lína 1: Lína 1:
{{Snið:Fiskar}}''Sæfífill (Anthozoa)''
{{Snið:Fiskar}}''Sandkoli (Limanda limanda)''
   
   
Um 24 tegundir sæfífla er að finna á grunnsævi við Ísland og er Sænellikan líklega einna mest áberandi þar, einnig er töluvert af Sænetlu og Hnúðafífli.
''Stærð:'' Lengsti sandkoli, sem vitað er um, veiddist rétt austan við Vestmannaeyjar í maí 1992, og var hann 48 cm á lengd. Annars er algengasta stærðin um 20-30 cm.


''Stærð:'' Sænellikan getur náð allt 30cm búklengd en Sænetla og Hnúðafífill eru talsvert minni.
''Lýsing:'' Sandkoli er hauslítill og með lítinn kjaft, sem nær aftur hægra auga. Tennur eru hvassar og uggar eru venjulegir flatfiskuggar. Sporðblaka er fremur stór. Hreistur er mjög smátt og hrjúft á dökku hliðinni en slétt á þeirri ljósu. Rákin er greinileg og myndar bug yfir eyrugganum. Hann getur skipt um lit eftir botni og umhverfi. Einnig er til sandkola albinói.


''Lýsing:'' Sænellikan getur haft allt að 500 arma, en armafjöldi er mjög breytilegur. Hún er oftast gul eða hvít á litinn. Sænetlan er fallega rauð á litinn og ber allt að 160 digra arma. Hún er einnig frekar stórvaxinn. Hnúðafífill er mun minni og hefur aðeins hnúða á efri hluta búksins. Sæfíflar eru algengastir í holsepaformi en finnast einnig í kórallaformi. Sæfíflar eru lang fjölmennasti undirhópur holdýra og eru um 6000 tegundir þekktar. Líkamsbyggingu þeirra er háttað þannig að þeir hafa aðeins eitt op sem þeir éta með og losa sig við úrgang. Þeir hafa ekki innri eða ytri kalkstoðgrind, en halda sinni lögun með vatnsþrýstingi og vöðvaafli. Í örmum sæfífla eru stingfrumur (nematocysts) svipað og marglyttan býr yfir, sem þeir nota til að lama bráðina.
''Heimkynni:'' Heimkynni hans eru í Hvítahafi og NA-Atlantshafi, meðfram ströndum Noregs og inn í Skagerak, Kattegat og dönsku sundin inn í Eystrasalt. Einnig er hann mjög algengur í Norðursjónum og nær útbreiðsla hans suður um Ermarsund og Biskajaflóa. Hann er við Bretlandseyjar, Færeyjar og Ísland en finnst hvorki við N-Ameríku né Grænland.


''Heimkynni:'' Sæfíflar eru botnfastir og eru mjög útbreiddir. Þeir finnast á grunnsævi og allt niður á 5000 metra dýpi. Þeir halda til aðallega í hlýjum sjó og eru allt í kringum Ísland.
''Lífshættir:'' Sandkoli er mjög algengur hér við land. Hann er aðallega grunnsævisfiskur á 20-40 m dýpi en fæst þó allt niður á 150 m dýpi. Mest er af honum á sandbotni. Hann flækist frekar lítið, nema hvað hann dregur sig út á djúpið á veturna og nálgast síðan landið á sumrin.  


''Lífshættir:'' Sæfíflar lifa oftast nær á hörðum botni, klettabotni eða sitja á skeljum og kuðungum oft þeim til varnar.
''Fæða:'' Fæðan er margbreytileg: ýmis smá krabbadýr, ormar, smáskeljar og sniglar. Einnig lifir hann á smáfiskum og smáþörungum. Og þótt ótrúlegt sé með svona lítinn fisk, þá étur hann mikið af stórum kúfiski.


''Fæða:'' Fæða sæfífla getur verið margvísleg eða frá agnarsmáum krabbadýrum upp í sæmilegustu fiska sem þeir lama með stingfrumum á örmunum. Þegar hann hefur fangað einhverja bráð með sínum fjölmörgu örmum þá stingur hann örmunum ofan í kokið á sér og hreinsar allt ætilegt af og skilar síðan úrganginum aftur út um sama opið.  
''Hrygning:'' Hrygningin fer fram allt í kringum land á 20-40 m dýpi eða dýpra, en sennilega mest í hlýja sjónum. Í hlýja sjónum byrjar hrygningin í apríl en ekki fyrr en í maí-júní í kalda sjónum. Eggjafjöldinn er 50-150 þús. og klekjast þau á 7-14 dögum.


''Æxlun:'' Sæfíflar geta fjölgað sér bæði með kynæxlun og kynlausri æxlun. Þeir geta fjölgað sér með því að mynda flipa á fæti. Flipinn losnar frá dýrinu og myndar nýjan einstakling og er þá um klónun að ræða. Við kynæxlun gefa einstaklingar frá sér kynfrumum sem síðan frjóvgast í sjónum. Okfruman þroskast og verður að lirfu sem síðan festir sig við botninn og umbreytist í fullorðinn holsepa.
''Nytsemi:'' Sandkoli er veiddur í dragnót og botnvörpu ásamt öðrum fiski. Hann er lítið notaður hérlendis en er nokkuð nýttur af nágrannaþjóðum okkar.
 
''Nytsemi:'' Nytsemi er engin nema þá að mörg dýr leggja sæfífla sér til munns m.a. fiskar og ýmsar tegundir sæsnigla.


[[Flokkur:Fiskar]]
[[Flokkur:Fiskar]]

Núverandi breyting frá og með 14. ágúst 2006 kl. 11:48

Sjávardýr
Fiskar
Önnur sjávardýr

Sandkoli (Limanda limanda)

Stærð: Lengsti sandkoli, sem vitað er um, veiddist rétt austan við Vestmannaeyjar í maí 1992, og var hann 48 cm á lengd. Annars er algengasta stærðin um 20-30 cm.

Lýsing: Sandkoli er hauslítill og með lítinn kjaft, sem nær aftur að hægra auga. Tennur eru hvassar og uggar eru venjulegir flatfiskuggar. Sporðblaka er fremur stór. Hreistur er mjög smátt og hrjúft á dökku hliðinni en slétt á þeirri ljósu. Rákin er greinileg og myndar bug yfir eyrugganum. Hann getur skipt um lit eftir botni og umhverfi. Einnig er til sandkola albinói.

Heimkynni: Heimkynni hans eru í Hvítahafi og NA-Atlantshafi, meðfram ströndum Noregs og inn í Skagerak, Kattegat og dönsku sundin inn í Eystrasalt. Einnig er hann mjög algengur í Norðursjónum og nær útbreiðsla hans suður um Ermarsund og Biskajaflóa. Hann er við Bretlandseyjar, Færeyjar og Ísland en finnst hvorki við N-Ameríku né Grænland.

Lífshættir: Sandkoli er mjög algengur hér við land. Hann er aðallega grunnsævisfiskur á 20-40 m dýpi en fæst þó allt niður á 150 m dýpi. Mest er af honum á sandbotni. Hann flækist frekar lítið, nema hvað hann dregur sig út á djúpið á veturna og nálgast síðan landið á sumrin.

Fæða: Fæðan er margbreytileg: ýmis smá krabbadýr, ormar, smáskeljar og sniglar. Einnig lifir hann á smáfiskum og smáþörungum. Og þótt ótrúlegt sé með svona lítinn fisk, þá étur hann mikið af stórum kúfiski.

Hrygning: Hrygningin fer fram allt í kringum land á 20-40 m dýpi eða dýpra, en sennilega mest í hlýja sjónum. Í hlýja sjónum byrjar hrygningin í apríl en ekki fyrr en í maí-júní í kalda sjónum. Eggjafjöldinn er 50-150 þús. og klekjast þau á 7-14 dögum.

Nytsemi: Sandkoli er veiddur í dragnót og botnvörpu ásamt öðrum fiski. Hann er lítið notaður hérlendis en er nokkuð nýttur af nágrannaþjóðum okkar.