Latur (sker)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. ágúst 2005 kl. 14:16 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. ágúst 2005 kl. 14:16 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Latur er drangur sem stendur norðan við Miðklett á Heimaey. Kletturinn fékk nafn sitt af því að menn sem reru frá Landeyjum til Vestmannaeyja tóku sér oft hvíld við Lat áður en haldið var inn innsiglinguna, þar sem að oft er mjög straumhart á þeim þríhyrnda fleti sem afmarkast af Bjarnarey, Elliðaey og hafnarmynni Heimaeyjar.