Latur (sker)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:28 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:28 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Latur

Latur er drangur sem stendur norðan við Miðklett á Heimaey. Kletturinn fékk nafn sitt af því að menn sem réru frá Landeyjum til Vestmannaeyja tóku sér oft hvíld við Lat áður en haldið var inn innsiglinguna, þar sem að oft er mjög straumhart á þeim þríhyrnda fleti sem afmarkast af Bjarnarey, Elliðaey og hafnarmynni Heimaeyjar.