„Jón Jónsson (Brautarholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(3 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 6: Lína 6:
Foreldrar hans voru hjónin [[Jón Jónsson (hreppstjóri)|Jón Jónsson]] hreppsjóri í Dölum og kona hans [[Jóhanna Gunnsteinsdóttir (Dölum)|Jóhanna Gunnsteinsdóttir]]. Eina systur átti hann, [[Dómhildur Jónsdóttir (Dölum)|Dómhildi]], en hún flutti ung til Ameríku.
Foreldrar hans voru hjónin [[Jón Jónsson (hreppstjóri)|Jón Jónsson]] hreppsjóri í Dölum og kona hans [[Jóhanna Gunnsteinsdóttir (Dölum)|Jóhanna Gunnsteinsdóttir]]. Eina systur átti hann, [[Dómhildur Jónsdóttir (Dölum)|Dómhildi]], en hún flutti ung til Ameríku.


Eiginkona Jóns var [[Guðríður Bjarnadóttir (Brautarholti)|Guðríður Bjarnadóttir]] í Svaðkoti, f. 1875. Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada, [[Ragnheiður Jónsdóttir (Þrúðvangi)|Bjarneyju Ragnheiði]] f. 1905 í Canada, [[Jóna Jóhanna Jónsdóttir|Jónu Jóhönnu]] f. 1907, d. 2005 og [[Ólafur Gunnsteinn Jónsson|Ólaf Gunnstein]] f. 1911, d. 1984.
Eiginkona Jóns var [[Guðríður Bjarnadóttir (Brautarholti)|Guðríður Bjarnadóttir]] í Svaðkoti, f. 1875. Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada, [[Ragnheiður Jónsdóttir (Þrúðvangi)|Bjarneyju Ragnheiði]] f. 1905 í Canada, [[Jóna Jóhanna Jónsdóttir (Brautarholti)|Jónu Jóhönnu]] f. 1907, d. 2005 og [[Ólafur Gunnsteinn Jónsson|Ólaf Gunnstein]] f. 1911, d. 1984.


Jón og Guðríður hófu búskap í [[Svaðkot]]i hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt [[Svaðkot]] á svipuðum stað og [[Suðurgarður]] stendur núna.  Þetta var lítið einlyft hús.
Jón og Guðríður hófu búskap í [[Svaðkot]]i hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt [[Svaðkot]] á svipuðum stað og [[Suðurgarður]] stendur núna.  Þetta var lítið einlyft hús.

Núverandi breyting frá og með 23. desember 2023 kl. 13:07

Jón í Brautarholti
Jón níræður

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson“


Jón Jónsson í Brautarholti fæddist 15. júlí 1869 í Norðurbænum á Vilborgarstöðum og lést 4. september 1964. Jón fluttist með foreldrum sínum að Dölum árið 1880.
Foreldrar hans voru hjónin Jón Jónsson hreppsjóri í Dölum og kona hans Jóhanna Gunnsteinsdóttir. Eina systur átti hann, Dómhildi, en hún flutti ung til Ameríku.

Eiginkona Jóns var Guðríður Bjarnadóttir í Svaðkoti, f. 1875. Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada, Bjarneyju Ragnheiði f. 1905 í Canada, Jónu Jóhönnu f. 1907, d. 2005 og Ólaf Gunnstein f. 1911, d. 1984.

Jón og Guðríður hófu búskap í Svaðkoti hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt Svaðkot á svipuðum stað og Suðurgarður stendur núna. Þetta var lítið einlyft hús.

Jón og Guðríður fluttu til Kanada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu Brautarholt við Landagötu 3b árið 1908.

Jón stundaði sjómennsku, þar af 13 ár á Gideon, gerði út báta, vann við byggingu Fiskimjölsverksmiðjunnar og vann þar síðan til ársins 1933, en gerðist þá ráðsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja í fjölda ára.

Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Álsey. Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef.

Jón lést árið 1964, 93 ára að aldri.

Sjá nánar um Jón við fiskveiðar á Austfjörðum með Magnúsi á Vesturhúsum, - í Bliki 1969/Endurminningar, II. hluti og áfram.

Myndir