Guðrún Kristín Guðjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. nóvember 2021 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. nóvember 2021 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Kristín Guðjónsdóttir.

Guðrún Kristín Guðjónsdóttir frá Gvendarhúsi, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 21. júní 1946 í Gvendarhúsi.
Foreldrar hennar voru Guðjón Guðlaugsson sjómaður, vélstjóri, smiður, bóndi, f. 3. september 1901 í Mundakoti á Eyrarbakka, d. 18. janúar 1958, og síðari kona hans Margrét Hróbjartsdóttir, húsfreyja, f. 15. september 1910 á Kúfhóli í A-Landeyjum, d. 30. september 2002.

Börn Margrétar og Guðjóns:
1. Theódór Guðjónsson kennari við Hlíðardalsskóla í Ölfusi, síðan skólastjóri barna- og unglingaskólans á Stokkseyri, f. 5. apríl 1931 í Dalbæ.
2. Þuríður Selma Guðjónsdóttir hjúkrunarforstjóri Sjúkrahússins í Eyjum, f. 6. júlí 1933 í Háagarði.
3. Guðrún Kristín Guðjónsdóttir húsfreyja og skrifstofumaður, f. 21. júní 1946 í Gvendarhúsi.
4. Hallfríður Erla Guðjónsdóttir skólastjóri á Álftanesi, f. 24. maí 1952.

Guðrún er fjórða bekkjar gagnfræðingur frá Gagnfræðaskólanum 1963.
Hún vann í Apótekinu og á Sjúkrahúsinu, en síðan hjá sýslumanni.
Þau Páll giftu sig 1969, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brimhólabraut 31 fram að Gosi, en síðan á Dverghamri 7.

I. Maður Guðrúnar, (6. apríl 1969), er Páll Pálmason knattspyrnukappi, stýrimaður, verkstjóri, f. 11. ágúst 1945 á Skjaldbreið, d. 6. nóvember 2021.
Börn þeirra:
1. Hörður Pálsson bifvélavirki, f. 25. febrúar 1966. Kona hans er Kolbrún Matthíasdóttir.
2. Grétar Víðir Pálsson rafmagns- og tölvuverkfræðingur í Reykjavík, f. 15. september 1975. Barnsmóðir að tveim börnum Sandra Dögg Pálsdóttir. Kona hans er Lilja Logadóttir frá Hellu á Rangárvöllum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.