„Guðbjörg Guðmundsdóttir (Bergi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Guðbjörg Guðmundsdóttir (Bergi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 17: Lína 17:
II. Sambýlismaður Guðbjargar var [[Guðmundur Jónsson (Stapa)|Guðmundur Jónsson]] verkamaður á Stapa 1940, f. 20. október 1897, d. 15. júlí 1965.

II. Sambýlismaður Guðbjargar var [[Guðmundur Jónsson (Stapa)|Guðmundur Jónsson]] verkamaður á Stapa 1940, f. 20. október 1897, d. 15. júlí 1965.

Börn þeirra voru:

Börn þeirra voru:

1. [[Sigurbjörg (Kolbrún) Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 30. nóvember 1924, d. 12. apríl 1975.

3. [[Sigurbjörg (Kolbrún) Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 30. nóvember 1924, d. 12. apríl 1975.

2. [[Friðbjörg Guðmundsdóttir]], síðast í Reykjavík, f.  10. mars 1926 á Bólstað, d. 30. júlí 1997.

4. [[Friðbjörg Guðmundsdóttir]], síðast í Reykjavík, f.  10. mars 1926 á Bólstað, d. 30. júlí 1997.

3. [[Þóra Egilsína Guðmundsdóttir]], f. 4. janúar 1930 á Bessastíg 4, d. 9. júlí 2008.

5. Jón Egilsson Guðmundsson, f. 28. september 1927, d. fyrir 1930.

6. [[Þóra Egilsína Guðmundsdóttir]], f. 4. janúar 1930 á Bessastíg 4, d. 9. júlí 2008.

Fósturbörn þeirra voru:

Fósturbörn þeirra voru:

4. Dóttursonur Guðbjargar, [[Arnar Andersen|Arnar Semingur Andersen]] sjómaður, f. 12. október 1935, sonur Jónu Ingibjargar Magnúsdóttur. Faðir hans var Svend Ove Andersen frá Friðrikssundi í Danmörku.

7. Dóttursonur Guðbjargar, [[Arnar Andersen|Arnar Semingur Andersen]] sjómaður, f. 12. október 1935, sonur Jónu Ingibjargar Magnúsdóttur. Faðir hans var Svend Ove Andersen frá Friðrikssundi í Danmörku.

5. Dótturdóttir Guðbjargar, dóttir Sigurbjargar,  [[Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan]], f. 12. júlí 1943.
8. Dótturdóttir Guðbjargar, dóttir Sigurbjargar,  [[Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan]], f. 12. júlí 1943.
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Útgáfa síðunnar 20. apríl 2016 kl. 20:15

Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Kagaðarhóli á Uppásum í Torfalækjarhreppi í A-Hún., síðar bústýra á Stapa, fæddist 16. ágúst 1894 og lést 2. maí 1976.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Semingsson vinnumaður, síðar bóndi á Kagaðarhóli, f. 15. október 1854, d. 23. ágúst 1922, og kona hans Soffía Björnsdóttir, f. 27. maí 1856.

Guðbjörg var niðursetningur í Köldukinn á Ásum 1901, vinnukona á Móbergi í Langadal í A-Hún. 1910.
Hún kom til Eyja úr Langadal 1915. Þau Magnús Valdimar voru leigjendur á Bergi hjá Þórði bróður Magnúsar 1916 og enn 1920, er Magnús lést.
Á Bergi eignuðust þau dætur sínar tvær.
Guðbjörg var lausakona á Bergi 1921 og 1923 með dætur sínar. 1923 var Guðmundur Jónsson þar leigjandi, 1924 voru þau búandi þar og Guðbjörg bústýra hans. Við fæðingu Friðbjargar 1926 var hún á Bólstað, en Guðmundur í París.
1927 bjuggu þau á Vesturhúsum, hann verkamaður, hún bústýra með dætur hennar og þeirra. Auk þeirra var hjá þeim tökudrengur óskírður, líklega Hinrik Guðmundsson Guðmundar Júníusar Jónssonar og Salbjargar Bjarnadóttur. Hann var þá nýfæddur á Vesturhúsum, en móðirinn fjarri í lok ársins. Hann fór í fóstur á Snæfellsnes og lést 1933 af slysförum í Reykjavík.
Þau Guðbjörg og Guðmundur bjuggu á Bessastíg 4 1929 og 1930, á Litlu-Eyri 1934, síðar á Stapa 1940 og enn 1945, voru flutt þaðan 1949.
Þau Guðmundur fluttust í Hafnarfjörð og bjuggu á Suðurgötu 44. Hann vann við skipasmíðar og lést 1965. Guðbjörg dvaldi síðast á Sólvangi þar. Hún lést 1976.

I. Sambýlismaður Guðbjargar var Magnús Valdimar Jónsson skipasmiður á Bergi, f. 27. október 1892, d. 13. október 1920.
Börn þeirra:
1. Jóna Ingibjörg Magnúsdóttir símakona, f. 19. september 1916, d. 20. október 1938.
2. Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir húsfreyja á Stapa, síðar í Hveragerði, f. 14. apríl 1920, d. 11. mars 2005. Maður hennar var Engilbert Þorbjörnsson bifreiðastjóri.

II. Sambýlismaður Guðbjargar var Guðmundur Jónsson verkamaður á Stapa 1940, f. 20. október 1897, d. 15. júlí 1965.
Börn þeirra voru:
3. Sigurbjörg (Kolbrún) Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1924, d. 12. apríl 1975.
4. Friðbjörg Guðmundsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 10. mars 1926 á Bólstað, d. 30. júlí 1997.
5. Jón Egilsson Guðmundsson, f. 28. september 1927, d. fyrir 1930.
6. Þóra Egilsína Guðmundsdóttir, f. 4. janúar 1930 á Bessastíg 4, d. 9. júlí 2008.
Fósturbörn þeirra voru:
7. Dóttursonur Guðbjargar, Arnar Semingur Andersen sjómaður, f. 12. október 1935, sonur Jónu Ingibjargar Magnúsdóttur. Faðir hans var Svend Ove Andersen frá Friðrikssundi í Danmörku.
8. Dótturdóttir Guðbjargar, dóttir Sigurbjargar, Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan, f. 12. júlí 1943.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.