Geirdís Ólafsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. janúar 2015 kl. 13:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. janúar 2015 kl. 13:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Geirdís Ólafsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1843 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 30. maí 1917 í Vesturheimi.
Faðir hennar var Ólafur bóndi á Núpi og Leirum u. Eyjafjöllum, f. 1815, Þórðarson bónda, síðast á Hjáleigusöndum þar, f. 1782 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 27. júlí 1838 á Hjáleigusöndum, Sveinssonar bónda, lengst á Hryggjum í Mýrdal, f. 1758, d. 20. október 1838 á Skeiðflöt, Eyjólfssonar, og konu Sveins, Guðrúnar húsfreyju, f. 1760 í Kálfholti í Holtum, d. 7. júlí 1834 á Skeiðflöt, Þórðardóttur prests Sveinssonar og konu hans Guðfinnu húsfreyju Þorsteinsdóttur.
Móðir Ólafs á Núpi og fyrri kona Þórðar á Hjáleigusöndum var Geirdís húsfreyja, f. 12. febrúar 1792 í Hvammi u. Eyjafjöllum, Ólafsdóttir bónda og hreppstjóra í Hvammi, f. 1760, d. 20. júní 1811, og konu Ólafs, Ólafar húsfreyju og ljósmóður, f. 1762, d. 31. desember 1841, Sveinsdóttur.

Móðir Geirdísar og kona Ólafs á Núpi var Halldóra húsfreyja, f. 24. mars 1807 á Aurgötu u. Eyjafjöllum, Skúladóttir bónda í Dalskoti þar, f. 1774 á Heiði í Mýrdal, Ögmundssonar, og konu Skúla, Þórunnar húsfreyju, f. 1. september 1779, Jónsdóttur.

Geirdís var með foreldrum sínum á Núpi 1845 og 1850. Hún var fósturbarn í Berjanesi þar 1860.
Við manntal 1870 og 1880 var Geirdís húsfreyja í Berjanesi með Jóni Ólafssyni.
Þau fluttust að Kirkjubæ 1889 með Skúla 8 ára og voru vinnufólk þar. 1890 var Geirdís gift vinnukona í Dölum.
Hún var í húsmennsku í Vanangri 1891 með Jóni og börnunum Skúla og Sigurði, (Sigurður er hulinn síðan). Hún var með Jóni lausamanni á Vilborgastöðum 1895 og þar var Skúli með þeim 14 ára.
Við manntal 1901 var hún gift hjú hjá Gísla syni sínum í Nýjabæ.
Hún fór til Vesturheims 1902 með Jóni, Gísla syni sínum og fjölskyldu hans.
Sama árið fór Skúli sonur hennar og Ólína dóttir hennar vestur.

I. Maður Geirdísar, (1867), var Jón Ólafsson húsmaður, f. 1841, d. 29. október 1918 í Vesturheimi.
Börn þeirra hér:
1. Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1864.
2. Halldóra Jónsdóttir, f. 5. febrúar 1869. Hún var eins árs með foreldrum sínum í Núpakoti 1870.
3. Gísli Jónsson bóndi í Nýjabæ, f. 1873.
4. Ólína Jónsdóttir, f. 10. febrúar 1877, d. 2. febrúar 1956. Hún var vinnukona á Gjábakka 1901, fór til Vesturheims 1902 frá Steinum u. Eyjafjöllum.
5. Ólöf Jónsdóttir vinnukona í Vallnatúni u. Eyjafjöllum, f. 1. maí 1879, d. 4. mars 1963.
6. Skúli Jónsson vinnumaður á Gjábakka, f. 29. nóvember 1881. Hann fór til Vesturheims frá Gjábakka 1902.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubók.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.