Ólína Jónsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólína Jónsdóttir á Gjábakka fæddist 10. febrúar 1877 í Steinasókn u. Eyjafjöllum og lést 2. febrúar 1956.
Foreldrar hennar voru Jón Ólafsson húsmaður á Vilborgarstöðum, f. 1841 í Jórvík í Álftaveri, d. 29. október 1918 í Vesturheimi, og kona hans, Geirdís Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. maí 1843 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 30. maí 1917 í Vesturheimi.

Meðal systkina Ólínu voru:
1. Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 2. júní 1864, fór til Vesturheims 1902.
2. Gísli Jónsson bóndi í Nýjabæ, f. 8. október 1873. Hann fór til Vesturheims 1902.
3. Ólöf Jónsdóttir vinnukona í Vallnatúni u. Eyjafjöllum, f. 1. maí 1879, d. 4. mars 1963.
4. Skúli Jónsson vinnumaður á Gjábakka, f. 29. nóvember 1881. Hann fór til Vesturheims frá Gjábakka 1902.
5. Jón Kristinn Jónsson klæðskeri, f. 7. júní 1886, d. 2. apríl 1964.

Ólína var með fjölskyldu sinni í Berjanesi u. Eyjafjöllum í bernsku. Fjölskyldan dreifðist og 3 af börnunum fóru í fóstur, Ólína að Gerðakoti 10 ára gömul. Þar var hún 1890.
Hún fluttist til Eyja 1899 frá Bryggjum í Landeyjum, var vinnukona á Gjábakka 1901, fluttist þaðan um Steinasókn u. Eyjafjöllum til Vesturheims 1902.
Ólína var ógift og barnlaus í Eyjum.
Hún var húsfreyja í Saskatchewan, Peace River í Alberta og White Rock.

I. Maður hennar, (21. nóvember 1906), var Magnús Guðmundur Guðlaugsson bóndi, f. 22. ágúst 1880 að Miðseli í Dal., d. 30. desember 1961. Foreldrar hans voru Guðlaugur Bjarnason bóndi í Miðseli (Ljárskógaseli) og Gimli í Manitoba, f. 15. desember 1829, d. 1887, og kona hans Magdalena Skúladóttir húsfreyja í Ljárskógaseli og Gimli , f. 15. júní 1840, d. 1887.
Börn þeirra:
1. Martha Violet Magnúsdóttir Guðlaugsson kennari í Alberni, British Columbia, f. 13. júlí 1907. Maður hennar W. J. Callister.
2. Elma Pearl Magnúsdóttir Guðlaugsson píanókennari í grennd við Sexsmith í Alberta, f. 13. maí 1908. Maður hennar Kristján Christian Jakobsson Helgason.
3. Oscar Allan Magnússon Guðlaugsson bóndi nálægt Beaver Lodge í Alberta. Kona hans Fern Guðlaugsson.
4. Leonard Skúli Magnússon Guðlaugsson fasteignasölumaður í Edmonton í Alberta, f. 28. september 1912.
5. Bryan Woodrow Magnússon Guðlaugsson smiður í North Burnaby, f. 6. apríl 1914. Kona hans Jessie Guðlaugsson.
6. Clarence Edwin Magnússon Guðlaugsson vélsmiður og bóndi í Clairmont í Alta. Kona hans Vera Guðlaugsson.
7. Ethel Margaret Magnúsdóttir Guðlaugsson tónlistarkennari og húsfreyja, f. 14. maí 1920. Maður hennar J. E. Haire.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.