Gísli Eyjólfsson (eldri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2013 kl. 17:21 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2013 kl. 17:21 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Gísli Eyjólfsson


Gísli

Gísli Eyjólfsson frá Búastöðum fæddist 17. apríl 1867 og lést 6. mars 1914. Foreldrar hans voru Eyjólfur Eiríksson bóndi og Jórunn Skúladóttir, hjón á Kirkjubæ.

Flutti til Vestmannaeyja 1869, með foreldrum sínum, sem settust að í Norðurbæ á Kirkjubæjum. Gísli varð bóndi á Eystri-Búastöðum, og áraskipaformaður. Annálaður fjallamaður, eins og bræður hans Guðjón á Kirkjubæ og Jóel á Sælundi.

Kona Gísla var Guðrún Magnúsdóttir, fædd 12.júlí 1865 í Berjanesi í V-Landeyjum, dáin á Búastöðum 24.sept. 1936. Þau giftust 14. maí 1894 og fengu þá byggingu fyrir jörðinni Eystri-Búastöðum. (Nyrðri-Búastöðum, eins og þau hétu áður en nýtt hús var byggt.)
Þau eignuðust fimm börn:

  • Lovísa, f.1895 d.1979 í Vestmannaeyjum, kona Bryngeirs Torfasonar
  • Eyjólfur f.1897 d.1995 í Reykjavík
  • Jórunn, f.1899, d.1916 í Reykjavík
  • Magnús, f.1904, d.1904
  • Margrét Magnúsína, f.1906, d.1906.

Myndir



Heimildir

  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum