Eyjólfur Þorbjörnsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. janúar 2015 kl. 21:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. janúar 2015 kl. 21:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Þorbjörnsson bóndi og hreppstjóri á Búastöðum vestri fæddist 1797 í Ystaskála u. Eyjafjöllum og lést 10. janúar 1840.
Faðir hans var Þorbjörn bóndi í Ásólfsskála þar 1801, f. 1772, Árnason, f. (1725), Þorbjörnssonar.
Móðir Eyjólfs og kona Þorbjörns var Vilborg húsfreyja, f. 1771, Tómasdóttir.

Eyjólfur var með foreldrum sínum í Ásólfsskála 1801, vinnumaður í Þorlaugargerði 1814, var þar 1822.
Hann var bóndi og hreppstjóri á Búastöðum.

Eyjólfur var bróðir
1. Vigdísar Þorbjörnsdóttur húsfreyju í Svaðkoti.
2. Árna Þorbjörnssonar bónda á Kirkjubæ.
Systurbörn Eyjólfs í Eyjum voru
1. Vilborgar Þórðardóttir húsfreyja í Elínarhúsi,
2. Geirdís Þórðardóttir húsfreyja í París,
3. Þorbjörn Þórðarson vinnumaður, sjómaður frá Svaðkoti og
4. Sveinn Þórðarson tómthúsmaður í Brandshúsi.

Kona Eyjólfs var Ragnhildur Ingimundardóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1799 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 11. mars 1888.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. ágúst 1826, d. 17. ágúst 1826 úr „Barnaveiki“.
2. Þorbjörg Eyjólfsdóttir, f. 31. október 1829, d. 6. maí 1915.
3. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 4. desember 1830, d. 11. desember 1830 úr „Barnaveiki“.
4. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 21. febrúar 1833, d. 2. mars úr „Barnaveiki“.
5. Andvana stúlka, f. 13. apríl 1834.
6. Þorbjörn Eyjólfsson, f. 21. maí 1835, d. 27. maí 1835 úr „Barnaveiki“.
7. Ólafur Eyjólfsson, f. 4. desember 1836, d. 15. desember 1836 úr ginklofa.


Heimildir