„Eyjólfur Þorbjörnsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 36: Lína 36:
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Þorlaugargerði]]
[[Flokkur: Íbúar í Þorlaugargerði]]
[[Flokkur: Íbúar á Búastöðum vestri]]
[[Flokkur: Íbúar á Vestri-Búastöðum]]

Útgáfa síðunnar 20. janúar 2018 kl. 13:33

Eyjólfur Þorbjörnsson bóndi og hreppstjóri á Búastöðum vestri fæddist 1797 í Ystaskála u. Eyjafjöllum og lést 10. janúar 1840.
Faðir hans var Þorbjörn bóndi í Ásólfsskála þar 1801, f. 1772, Árnason, f. (1725), Þorbjörnssonar.
Móðir Eyjólfs og kona Þorbjörns var Vilborg húsfreyja, f. 1771, Tómasdóttir.

Eyjólfur var með foreldrum sínum í Ásólfsskála 1801, vinnumaður í Þorlaugargerði 1812 og kvæntur vinnumaður þar 1824.
Þau Ragnhildur voru komin að Búastöðum 1826 og bjuggu þar síðan.
Þau eignuðust 7 börn, en aðeins eitt barna þeirra lifði æskuna.

Eyjólfur var bróðir
1. Vigdísar Þorbjörnsdóttur húsfreyju í Svaðkoti.
2. Árna Þorbjörnssonar bónda á Kirkjubæ.
Systurbörn Eyjólfs í Eyjum voru
1. Vilborgar Þórðardóttir húsfreyja í Elínarhúsi,
2. Geirdís Þórðardóttir húsfreyja í París,
3. Þorbjörn Þórðarson vinnumaður, sjómaður frá Svaðkoti og
4. Sveinn Þórðarson tómthúsmaður í Brandshúsi.

Kona Eyjólfs, (15. október 1824), var Ragnhildur Ingimundardóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1799 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 11. mars 1888.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. ágúst 1826, d. 17. ágúst 1826 úr „Barnaveiki“.
2. Þorbjörg Eyjólfsdóttir, f. 31. október 1829, d. 6. maí 1915.
3. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 4. desember 1830, d. 11. desember 1830 úr „Barnaveiki“.
4. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 21. febrúar 1833, d. 2. mars úr „Barnaveiki“.
5. Andvana stúlka, f. 13. apríl 1834.
6. Þorbjörn Eyjólfsson, f. 21. maí 1835, d. 27. maí 1835 úr „Barnaveiki“.
7. Ólafur Eyjólfsson, f. 4. desember 1836, d. 15. desember 1836 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.