Björn Björnsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 17:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 17:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Björn Björnsson''' á Oddsstöðum og síðar bóndi á Steinsstöðum fæddist 16. mars 1789 í Kollabæ í Fljótshlíð og lést 20. júní ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Björnsson á Oddsstöðum og síðar bóndi á Steinsstöðum fæddist 16. mars 1789 í Kollabæ í Fljótshlíð og lést 20. júní 1821.
Föður hans var ekki getið við skírn, en hann var Björn í Kollabæ í Fljótshlíð.

Móðir Björns var Bergljót Sigurðardóttir, f. 1750, d. 21. nóvember 1819.

Bergljót móðir Björns var föðursystir Bóelar húsfreyju á Oddsstöðum, konu Jóns Þorleifssonar sýslumanns.

Björn var vinnudrengur í Tjarnarkoti í A-Landeyjum 1801, en þá var móðir hans vinnukona í Hallgeirsey þar. Hann var hjá Bóel frænku sinni á Oddsstöðum 1810, en var orðinn bóndi á Steinsstöðum 1813 með Málfríði fyrri konu sinni, Einari barni þeirra og Bergljótu móður sinni. Þar var einnig dóttir hans Þuríður Björnsdóttir á fyrsta ári.
Við manntal 1816 var Björn á Steinsstöðum með síðari konu sinni Helgu Stefánsdóttur, börnum sínum Einari 6 ára og Þuríði 3 ára, Helgu konu sinni og Bergljótu móður sinni. Hann lést 1821.

Björn var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (2. september 1810), var Málfríður Jónsdóttir húsfreyja, f. um 1773.
Barn þeirra:
1. Einar Björnsson, f. 19. júní 1810, d. 2. júní 1821.<br

II. Barnsmóðir Björns var Anna Bjarnadóttir í Þorlaugargerði, f. 22. maí 1787, d. 7. júní 1840.
Barnið var
2. Þuríður Björnsdóttir, f. 1813 í Þorlaugargerði, d. 16. október 1837.

III. Síðari kona Björns var Helga Stefánsdóttir frá Bjalla á Landi, húsfreyja á Steinsstöðum 1816, f. 5. desember 1783, d. 28. febrúar 1864. Hún varð síðar kona Halldórs Ásmundssonar í Stóra-Gerði.
Börn Björns og Helgu hér:
3. Ingiríður Björnsdóttir, f. 12. september 1817, d. 19. maí 1817.
4. Ingiríður Björnsdóttir húsfreyja í Stóra-Gerði, f. 9. september 1818, d. 4. júlí 1870.
5. Helga Björnsdóttir, f. 28. október 1819, d. 2. nóvember 1819.
6. Björn Björnsson, f. 2. júlí 1821, d. 8. júlí 1821.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.